Skrýtla er
góð allhliða hryssa. Hún er mjög skrefastór og ganglagið
gott. Geðslagið er úrvals gott og traust og hefur hún gjarnan verið
notuð undir gesti sem vilja fá að fara á bak. Björn Guðjónsson frumtamdi
hana en eftir það höfum við þjálfað hana sjálf og hefur það verið létt
verk. Sumarið 2007 keppti Vignir á Skrýtlu á Fjórðungsmóti í
A-flokki og voru þau 0,01 frá því að komast í úrslit. Þá var hún 6
vetra. Skrýtla hefur verið frekar mikill hrakfallabálkur hingað
til og m.a. skorist illa á fæti auk annarra smápústra sem hafa þó dugað
til þess að ekki hafi verið hægt að þjálfa hana.Þetta hefur helst gerst á vorin svo að
ekki hefur verið hægt að gera mikið með hana á besta tíma.
Allt gekk þetta þó upp á endanum og var hún sýnd vorið 2008 á
Dalvík af Bjarna Jónassyni og gekk bara prýðilega. Hún fékk að
vísu bara 7,0 fyrir skeið sem er of lítið enda skeiðar hún uppá
a.m.k 8,0 en virkar alltaf hæg. Meðal systkina Skrýtlu er Úði
frá Húsavík sem margir kannast við.