Ópera var sem
fósturvísir flutt úr Ósk móður sinni í meðgöngumóður, Blessun frá
Keldunesi. Það var samstarfsverkefni Vignis, Vilbergs og Matta.
Hún er nú í eigu okkar og Vilbergs í Kommu en Matti á eitt folald undan
henni. Á fjórða vetur var hún frumtamin hjá Mette
Mannseth en var full viljug og ör til hægt væri að sýna hana þá.
Því var ákveðið að láta hana eiga eitt folald.
Á sjötta vetur var svo klárað að temja hana. Hún er mjög
létt og skemmtileg og var í miklu uppáhaldi hjá Berglindi sem sá um
þjálfun á henni þann veturinn. Ópera er frekar lítil en samsvarar
sér vel og er mjög fríð. Hún var sýnd vorið 2008 af Jakobi
Sigurðssyni og gekk bara nokkuð vel nema að okkur finnst 7,5 fyrir
brokk allt of
lítið eins og sjá má af videoinu af henni.
Spennandi verður að hafa hana sem ræktunarhryssu á næstu árum enda
skemmtileg blanda af ættum í henni. Berglind hefur oft haft á
orði að Ópera sé skemmtilegasta hross sem hún hafi kynnst og bíður
nú bara spennt eftir afkvæmunum undan henni.
Afkvæmi
2007 Óskar frá Möðrufelli
F: Ódesseifur frá Möðrufelli (eig. Matti á
Möðrufelli)
Óskar hlaut 1. sæti á folaldasýningu
á Melgerðismelum 2008 og var valinn flottasta folaldið af
bæði dómurum og áhorfendum.
2009 Óskadís frá Kommu F: Þóroddur frá Þóroddsstöðum f. 19.6
2010 Óskhyggja frá Húsavík F:
Fróði frá Staðartungu f. 16.5