7. júní 2008
Í dag var Firmakeppni Grana haldin á Húsavík.  Félagsmenn létu ekki sitt eftir liggja nema við sem vorum nú bara áhorfendur að þessu sinni.  Reyndar er nú bara ágætt að hafa tækifæri til að fylgjast almennilega með mótinu.  Veðrið var að nokkuð gott en sennilega hefðu hross og knapar þegið aðeins minni vind.  Eftir mótið var kaffi og með því í Félagsheimilinu.  Dísa, Fríða og Jóa fá bestu þakkir fyrir það.  Úrslit mótsins voru:
Barnaflokkur:
1. Hildur Eiðsdóttir
          2. Iðunn Bjarnadóttir
3. Hrund Benediktsdóttir
          4. Sigríður Atladóttir
5. Thelma Tómasdóttir
Fullorðinsflokkur:
1. Gísli Haraldsson og Kamban frá Húsavík
          2. Martein (Matti) og Þór frá Árgerði
3. Ingólfur Jónsson og Bragur frá Bjarnastöðum
          4. Þorgrímur Sigmundsson og Glaður frá Skarði
5. Jón Óli Sigfússon og Taktur frá Húsavík
Berglind er að útbúa heimasíðu fyrir Grana eins og fram hefur komið áður.  Síðan er tilbúin er erfiðlega gengur að koma henni á netið.  Þangað til það tekst verður síða hér með upplýsingum um reiðskemmumál hér á Húsavík.  Með því að smella á "reiðskemma" takkann hér til vinstri er hægt að komast inná síðuna.  Hér eru tvær sem Dísa tók af Bjarna Pál og Elsu að leggja af stað suður í Saltvík með fríðan flokk barna eins og vanalega á firmakeppninni.
 
6. júní 2008
Myndavélin gleymdist á Akureyri fyrir nokkrum dögum og myndirnar af folanum undan Dúsu og Hróðri.  Vélin er komin leitirnar svo nú getið þið séð myndir af nýjasta fjölskyldumeðlimnum :)  Við erum líka búin að breyta tenglasafninu og bæta við tenglum auk þess sem komið er inn nýtt myndaalbúm.
   

5. júní 2008
Umsögnin frá kynbótadómurunum um Sigurstein kom fyrir nokkru síðan en við vorum bara ekki búin að koma því í verk að setja hana hingað inn.  Við ætlum að hafa hann í hólfi með nokkrum merum í sumar og kostar það 25.000 kr hafi menn áhuga á að nota hann.  Hægt er að hafa samband við Vigni í síma 893-7901 eða á vignirsigurola@simnet.is 

3. júní 2008
Fyrsta folald ársins er komið :)  Dúsa kastaði í gærkvöldi rauð-tvístjörnóttum hesti undan Hróðri frá Refstöðum.  Þarna er væntanlega enn eitt stóðhestefnið en við vorum nú frekar að vonast eftir meri enda höfum við bara fengið eitt merfolald undanfarin 2 ár.  Folinn virðist vera mjög fallegur, háfættur og fríður, en það er auðvitað ómögulegt að segja með þessi folöld hvernig þau þróast.  Á morgun förum við vestur í Skagafjörð að sækja Birnu og ætlum að sjálfsögðu að vona að það hafi nú lukkast að koma í hana folaldi.
30. maí 2008
Þá er kominn dómur á Hóf frá Varmalæk sem við eigum einmitt 1 hlut í.  Hann var sýndur í gær og er dómurinn bara mjög góður teljum við, enda er hesturinn það.  Birna mun fara undir hann núna á næstu dögum en hún reyndist ekki hafa fengið eftir að við fórum með hana undir Hróður um daginn.

 

IS-2003.1.57-800 Hófur frá Varmalæk

Sýnandi: Mette Mannseth
Mál (cm):  144   134   138   62   141   35   43   39   6,8   30,0   19,0  
Hófa mál:  V.fr. 8,9   V.a. 8,4  

Aðaleinkunn: 8,31

Sköpulag: 8,20

Kostir: 8,38


Höfuð: 8,5
   Frítt   Skarpt/þurrt   Fínleg eyru  

Háls/herðar/bógar: 8,5
   Hátt settur   Mjúkur   Skásettir bógar   Háar herðar  

Bak og lend: 8,0
   Vöðvafyllt bak  

Samræmi: 8,0
   Hlutfallarétt  

Fótagerð: 8,0

Réttleiki: 8,0

Hófar: 8,5
   Efnisþykkir  

Prúðleiki: 7,0
 

Tölt: 9,0
   Taktgott   Há fótlyfta   Mikið framgrip   Skrefmikið   Mjúkt  

Brokk: 9,0
   Taktgott   Öruggt   Skrefmikið   Há fótlyfta   Svifmikið  

Skeið: 5,0

Stökk: 9,0
   Svifmikið   Hátt   Takthreint  

Vilji og geðslag: 9,0
   Ásækni   Vakandi  

Fegurð í reið: 9,0
   Mikið fas   Mikil reising   Góður höfuðb.   Mikill fótaburður  

Fet: 8,0
   Skrefmikið   Ójafnt  

Hægt tölt: 8,5

Hægt stökk: 9,5
 

 

25.maí 2008
Það er nú löngu kominn tími á einhverjar fréttir hérna hjá okkur.  Berglind og Bjartur voru í burtu í viku um miðjan mánuðinn í sauðburði á Gunnarsstöðum og tóku því lítinn þátt í hestamennskunni á meðan.  Það er annars helst að frétta að Dáti og Bogi eru komnir suður á Haukamýri þar sem við erum með sumarbeit.  Eftir að þeir voru farnir tókum við inn hina tvo veturgömlu folana, Sigurvin og Gýg.  Þeir voru inni í 3 daga til að gera þá bandvana.  Í gær gelti Vignir Gýg og eftir það fórum við með þá á Haukamýrina til hinna folanna og tókum Skreytingu Þristsdóttur í staðinn heim í hús.  Einnig er þeir félagar Ívar og Hanski komnir á járn og eru í strangri megrun enda komu þeir óþarflega vel undan vetri.
          Ekkert folald er enn komið en Dúsa á að kasta á næstu 10 dögum eða svo en hún er fylfull við Hróðri.  Þau hross frá okkur sem fara á kynbótasýningu í vor fara á Dalvík svo við bíðum bara spennt þangað til.
         Einstök veðurblíða hefur verið hér síðustu daga og vikur og gróðurinn tekur við sér í samræmi við það.  Vonandi verður þetta bara fyrsta vorið í langan tíma sem við sleppum við hret, 7-9-13.  Granamenn fylktu liði í byrjun síðustu viku og rökuðu lausa grjótið ofan af reiðveginum og grilluðu svo pylsur á eftir.  Vegurinn er allur annar svo nú neyðumst við til að finna nýja ástæðu fyrir því að hrossin séu kannski eins og maður helst vildi.
         Berglind er að vinna þessa dagana í heimasíðu fyrir Grana og verður hún á www.grani.is og kemst hún vonandi upp á næstu dögum.  Myndirnar með fréttinni eru af Vigni að gelda Gýg og að gera Sigurvin bandvanan.

 

10.maí 2008
Enn hefur veðrið verið að stríða okkur og varla viðrað til útreiða.  Helstu fréttirnar eru sennilega þær að í gærkvöldi keyrðum við inní Skagafjörð með hana Birnu undið Hróður.  Við sóttum hana útí Steindal í fyrradag til að Vignir gæti fylgst með henni og það vildi bara svo heppilega til að hún var bara á besta tíma og ekki eftir neinu að bíða með að koma henni undir hest.  Þetta gekk mjög vel allt saman og sýndist Vigni þetta vera glámblesótt og hringeygt.  Nú krossleggjum við bara fingurna og vonum að þetta lukkist allt saman hjá henni enda farið að lengja eftir því að hún eignist folöld á minna en þriggja ára fresti.
Myndin hér til hliðar er af Önnu, Bjarti og Vigni með Hróður.
4. maí 2008
Það er ekki mikið að gerast í hestamennskunni þessa dagana enda allir á heimilinu búnir liggja í flensu.  Vignir fór suður á Selfoss á námskeið um tannhirðu hrossa síðasta miðvikudag og tók Óperu með í leiðinni og skildi hana eftir hjá Jakobi Sigurðsson.  Jakob var ánægður með hana svo þá er bara að vona að kynbótadómararnir verði það líka :)  Stærsta spurningin er sennilega hvort hún sé vökur.  Við höfum ekkert átt við skeið í henni í vetur en höfum vonað að það blundi í henni.  Óður bróðir hennar mun hafa verið klárhestslegur þangað til hann var lagður í fyrsta skipti og flugskeiðaði.
    Dáti og Bogi eru enn á húsi en munu fara aftur útí eftir nokkra daga þegar þeir verða orðnir vel bandvanir.  Spurningin er bara hvert þeir eiga að fara því við þorum varla að setja þá saman við stóðið enda orðnir nokkuð þroskaðir báðir tveir.  Myndin hér til hliðar er af Bjarti að skoða þá Dáta og Boga.
28. apríl 2008

Gestabókin er komin í lag!!!

Í gærmorgun var tekin sú ákvörðun að venja Dáta undan Birnu því hún á að fara undir stóðhest fljótlega.  Við tókum hann heim í hesthús og Boga Dúsuson með honum.  Hvorugan á að gelda og því ágætt að gera þá bandvana.  Bogi er í meðallagi stór en virkar kettlingur við hliðina á Dáta.  Við mældum Dáta til gamans og var hann 130-132 á stöng og ekki orðinn ársgamall!!  Hann virðist ætla að verða þokkalega prúður og nokkuð flottur á litinn, sótrauður með mjög grásprengt fax.  Bogi er mjög ólíkur honum, fínlegur allur en í meðallagi stór samt.
    Í morgun renndi Vignir inní Stóru-Lauga þar sem Sigursteinn er í titta-hólfi.  Þar voru á ferðinni Þorvaldur Kristjánsson  og Valberg Sigfússon kynbótadómarar að meta ungfola fyrir fólk.   Þeir voru mjög jákvæðir fyrir Sigursteini og er væntanleg skrifleg lýsing frá þeim á næstu dögum.  Meðfylgjandi mynd var tekin við það tækifæri
    Af heimasíðugerð er það að frétta að unghrossa síðan er tilbúin og síður fyrir c.a. helming af reiðhrossunum.  Mest lukkan er þó með að vera búin að koma gestabókinni í lag svo nú verða allir að kvitta sem kíkja hingað inn :)
 
27. apríl 2008
Gærdagurinn fór í ferðalag vestur í Skagafjörð.  Við vorum að fara með Siggu (Sigurgyðu) og Skrýtlu í þjálfun fyrir kynbótasýningu.  Sigga fór til Sölva Sigurðssonar á Hofi á Höfðaströnd en Skrýtla til Bjarna Jónassonar á Narfastöðum.  Á Hofi hittum við gamlan vin, Sigur frá Húsavík, sem er í góðu yfirlæti í frábærri aðstöðu sem verið er að byggja upp þar.  Þó nokkur vinna var eftir við reiðhöllina en augljóst að þetta stefnir í að verða svakalega skemmtileg aðstaða og á örugglega eftir að verða eftirsóknarverð vinnuaðstaða fyrir tamningamenn.  Þarna eru þau systkinin Sigga og Sigur að hittast í e.t.v. fyrsta skipti á ævinni, allavega í 4-5 ár.  Efri myndin er úr hesthúsinu á Hofi og neðri myndin af Sigri.  Við litum við hjá Gísla og Mette á Þúfum og kíktum á Kappa, sem er þar í tamningu. 
      Tekið til kostanna var á Króknum um helgina og kíktum við þangað um miðjan daginn.  Þar var kennslusýning frá Hólaskóla sem var gagn og gaman af.  Við fórum ekki á kvöldsýninguna í þetta skiptið þar sem við sáum ekki framá að vera komin heim fyrr en um miðja nótt. 

 
23. apríl 2008 
Í gær fórum við fram í Torfunes og sóttum Döllu sem hefur verið í tamningu þar hjá Erlingi í 2 mánuði.  Hann sýndi okkur merina  og leist okkur vel á hana.  Hún er vel tamin og mjög efnileg en verður þó ekki sýnd í vor enda á hún greinilega mikið inni.  Sennilega fær hún bara frí þangað til hrossin komast í sumarhaga á Haukamýrinni.  Í staðin fyrir Döllu fórum við með Eygló sem er á fimmta vetur.  Hún hefur ekki verið á járnum síðan í fyrra haust svo það er kominn tími á að sinna henni.
       Veðurblíðan heldur bara áfram hér á Húsavíkinni og er reiðvegurinn loksins að verða almennilegur eftir að hafa verið eitt drullusvað í alltof langan tíma.
Heimasíðan smá mjakast áfram en því miður er gestabókin enn í ruglinu en lagast vonandi sem fyrst.
 
21. apríl 2008 
Kíktum útí Steindal í morgun og gáfum stóðinu.  Veðrið var frábært og er búið að vera það undanfarna daga og drullan allsstaðar í samræmi við það.  Myndavélin var með í för og tók Vignir þessa skemmtilegu mynd af Bjarti.  Hrossin eru ekkert sérlega glæsileg um þessar mundir og ekkert gaman að taka myndir af þeim.  Í gær skruppum við fram í Stóru-Lauga og kíktum á Sigurstein sem er þar í vetrarvist ásamt öðrum graðtittum, neðri myndin var tekin þá.  Hann hefur stækkað mikið og lítur bara vel út og virðist ætla að verða ágætlega prúður sem hefur nú oft vantað á systkini hans.
     Af heimasíðumálum er það helst að frétta að gestabókin er í rugli en við reynum að koma því í lag eftir helgi.
Svo bætist alltaf aðeins við upplýsingar um hrossin.

 

 

 
19. apríl 2008 
Við erum á fullu að vinna í síðunni og er komin smá mynd á hana.  Hægt er að skoða nokkrar ræktunarhryssur og aðeins í reiðhrossunum.  Vonandi líður ekki að löngu þangað til hún verður endanlega tilbúin.