Við skruppum í blíðunni síðasta
laugardag með hestana á Kaldbakstjörn þar sem við áttum frábæran dag
í snilldar færi á ísnum. Tókum myndir af nokkrum hestum og
erum núna að týna þær inn. Næstur í röðinni er
Sigursteinn.
Hann er á 6.vetur og þegar kominn með 1. verðlaun. Hann er
frúarhesturinn á bænum og stendur sig með prýði. Ótrúlega
skemmtilegur, næmur og gerir allt sem maður biður hann um, þ.á.m. að
dilla sér á ísnum :)
Dáti frá Húsavík "on ice" 5. febrúar 2012
Dáti er stóðhestur á fimmta vetur
undan gæðingamóðurinni
Birnu Baldursdóttur (8,17) og Hágangi frá Narfastöðum.
Hann er í stöðugri framför og mætir vonandi á kynbótabrautina í vor.
Hann er gríðarlega stór og myndarlegur, stórstígur og hágengur
alhliðahestur með stáltaugar. Annars tala myndirnar sínu máli
:)
Reiðhöllin komin í notkun 25. janúar 2012
Nú er búið að taka nýju reiðhöllina
í Saltvík í notkun þó formleg vígsla hafi ekki farið fram.
Töluverð vinna er enn eftir í henni en þó er vel hægt að nota hana.
Á laugardaginn var opinn dagur og skelltum við okkur með tvo
stóðhesta á kerrunni. Gaman er líka að geta nú loksins aðeins
haft krakkana með í tamningunum. Viðja Karen er alveg
hestasjúk og lét ekki bjóða sér neitt minna en fyrstu verðlauna
stóðhest undir hnakkinn. Enda er
Sigursteinn ótrúlegur höfðingi og
lét sig ekki muna um að tölta nokkra hringi með skvísuna :)
Stóðhestarnir
6. janúar 2012
Við erum óvenju vel byrg af
stóðhestum þessa dagana og svo komið að við getum ekki haft neinar
hryssur á húsi. Þetta eru meðal annarra frændurnir
Bogi og
Dáti. Þeir
eru báðir á fimmta vetur og eru undan mæðgum. Dáti er undan
Hágangi frá Narfastöðum og
Birnu Baldursdóttur (8,17) sem
reynst mjög góð ræktunarmeri. Bogi er undan Baugi frá Víðinesi
og Dúsu (8,40)
sem er einmitt undan Birnu. Þeir eru að komast í form og lofa
báðir mjög góðu.
Gleðilegt nýtt ár
5. janúar 2012
Við óskum lesendum okkar gleðilegra
jóla og nýs árs. Það er löngu orðið tímabært að setja inn
frétt hérna en eitt af mörgum fögrum áramótaheitum er að vera
duglegri að setja inn fréttir á síðuna. Lítið var um tamningar
síðustu vikur ársins vegna leiðinda veðurfars og færðar.
Yngsti tamningamaðurinn á heimilinu lét það þó ekki hafa áhrif á sig
þegar stóðinu var gefið í mokandi snjókomu í desember. Veðrið
hefur þó ekki haft áhrif á vinnuna í reiðhöllinni í Saltvík.
Þar eru menn í óða önn að gera hana tilbúna til notkunar svo hægt
verði að temja í skjóli frá veðri og vindum.
Hólatryppin tekin út 22.október 2011
Við skruppum í dag í Hóla í
Hjaltadal til að taka út og sækja 2 tryppi sem við áttum í tamningu
þar. Það eru Röskva og Gýgur frá Húsavík. Þau eru
sammæðra, undan Gjóstu frá Möðrudal (7,59). Gýgur er jarpur
undan Gýgjari frá Auðsholtshjálegu og Röskva er rauðblesótt undan
Rökkva frá Hárlaugsstöðum. Þau eru búin að vera á Hólum í
frumtamningu í 7 vikur og búið að kenna þeim mjög mikið á þeim tíma.
Við erum mjög ánægð með þau bæði og teljum þau lofa mjög góðu.
Gýgur er skrokkmjúkur, gefur vel eftir í hnakka, með flott skref og
greinilega mjög laus gangur í honum. Röskva sýnir ekki gang en
með fínan fótaburð og lofar góðu.
Tamningar
9.október 2011
Tamningar eru aðeins að komast af
stað hjá okkur þetta haustið. Tvö tryppi eru á Hólum, þau
Röskva og Gýgur sem eru sammæðra undan Gjóstu. Feður þeirra
eru Rökkvi frá Hárlaugsstöðum og Gýgjar frá Auðsholtshjáleigu.
Hesthúsið er svo hálffullt af stóðhestum á ýmsum aldri.
Upphaflega ætluðum við bara að taka þá sem eru á tamningaaldri en
enduðum á að taka ungfolana líka í smá fortamningu. Til
stendur að gelda tvo þeirra, Sigurvin og Dýra, sem eru ekki nógu
fallegir til að vera stóðhestar. Vignir fór svo með Búa í
Þúfur til Mette enda stóð hún sig frábærlega með báða foreldra hans.
Hér er smá yfirlit yfir þá sem við höfum haft undir höndum síðustu
daga:
Bessi frá
Húsavík f.2010 F: Auður frá Lundum (8,46) M: Dúsa frá Húsavík
(8,40)
Maríus frá
Húsavík f: 2009 F: Kappi frá Kommu (8,51) M: Skrýtla frá
Húsavík (8,10)
Búi frá
Húsavík f: 2008 F: Hróður frá Refstöðum (8,39) M: Dúsa frá
Húsavík (8,40)
Bogi frá
Húsavík f: 2007 F: Baugur frá Víðinesi (8,48) M: Dúsa frá
Húsavík (8,49)
Dáti frá
Húsavík f: 2007 F: Hágangur frá Narfastöðum (8,31) M: Birna
frá Húsavík (8,17)
Hér eru svo myndir sem við tókum í
vikunni af þeim Dýra, Maríusi og Bessa.
Í fréttum er þetta helst...
5.október 2011
... að við erum enn á lífi þó
heimasíðan hafi ekki borið þess merki undanfarið. Orsökin
liggur ekki í skorti á fréttum heldur framtaksleysi umsjónarmanns
síðunnar :) Umræddur umsjónamaður skellti sér í göngur á
heimahögunum í Þistilfirði í byrjun september. Þetta eru
þriggja daga göngur og gist er í gangnakofa í tvær nætur.
Veðurguðirnir sýndu ekki alveg sínar bestu hliðar þessa daga og
landið ekki auðvelt yfirferðar en það var allt bætt upp með
taumlausri gleði í kofanum á kvöldin. Helgina eftir var svo
haldið áfram að smala og réttað á Gunnarsstöðum. Við skelltum
okkur þangað öll fjölskyldan en Vignir var upptekinn við
gæsaskytterí á meðan aðrir drógu fé í dilka.
Af
hrossaræktinni er það helst að frétta að
Dúsa (8,40) kom því miður tóm frá
Spuna frá Vesturkoti og skelltum við henni þá í hólf hjá Klakanum
frá Skagaströnd og er hún fengin við honum. Móðir hennar,
Birna (8,17)
Baldursdóttir, er því miður tóm en einhver benti okkur nú á að það
breytti nú varla miklu því enda dræpist nánast allt undan henni :/
En ætlum þó reyna eitt sumar í viðbót með þá gömlu enda mikil
gæðingamóðir.
Myndir frá Landsmóti
17.ágúst 2011
Loksins eru myndir frá Landsmótinu
að týnast inn. Komnar eru myndir af öllum 4 og 5 vetra
kynbótahrossum, hryssum og stóðhestum. Smellið á "Myndir" til að sjá
þær. Á næstunni munu svo bætast við myndir í hina flokkana sem búið
er að setja inn.
Annars eru
það helst að frétta að heyskap er lokið og hryssurnar farnar að
týnast heim frá stóðhestum.
Gjósta (7,59) er fengin við
Sigursteini
frá Húsavík, Dalla
er fengin við Klakanum frá Skagaströnd og
Ópera (7,86) við Kompási frá
Skagaströnd. Svo er Dúsa
(8,40) komin heim eftir sæðingar hjá Spuna frá Vesturkoti og
Skrýtla
(8,10) og Sigurgyða
(7,85) eru enn í hólfum hjá þeim bræðrum Kapli og Kappa frá Kommu.
Um síðustu
helgi skelltum við hrossum á kerruna og brunuðum í Þistilfjörðinn
þar sem ný reiðskemma og hesthúsaðstaða voru vígð á Gunnarsstöðum.
Þetta var hin besta skemmtun og voru a.m.k. 60 manns ríðandi í
myndarlegum hópreiðtúr, keppt var í þrautabraut og svo slúttað með
mikilli grillveislu og balli í reiðskemmunni. Látum hér fylgja með
myndir sem við höfum tekið undanfarið af heyskap, hestamennskunni og
skrautlegu heimilishaldinu :)
Frábærir Mærudagar að baki
25.júlí 2011
Veðurblíðan lék við okkur nú um
helgina. Heilmikið var um að vera á Sail Húsavík og Mærudögum, meðal
annars voru félagsmenn Grana með gæðingasýningu. Börn og fullorðnir
sýndu sitt besta og m.a. voru sýndir 3 fyrstu verðlauna graðhestar í
eigu Granamanna, Sigursteinn okkar frá Húsavík, Hraunar frá Húsavík
og Helgi frá Neðri-Hrepp. Við enduðum þessar góðu helgi með
gullfiskaveiðum í Krókódílatjörninni hér við Húsavík :)
Glannaleg hryssa undan Skrýtlu og Hófi frá
Varmalæk
24.júlí 2011
Vinnan slítur frítímann algjörlega í
sundur fyrir okkur svo varla hefur gefist tími í taka myndir eða
setja inn fréttir. En nú skal ráðin bót á því :) Daginn sem
við komum heim af Landsmótinu kastaði Skrýtla brún stjörnóttir
glaseygðri hryssu undan Hófi frá Varmalæk. Hún er glannaleg til
augnanna sú stutta en það er þó skárra að hafa glaseygt á báðum
augum en ekki öðru. Skrýtla er svo farin undir Kapal frá Kommu sem
er bróðir Kappa, undan Kjarnorkur frá Kommu og Álfi frá Selfossi.
Myndir frá Landsmóti
5.júlí 2011
Berglind er á fullu að vinna í myndunum sem
hún tók á Landsmótinu og fara þær að birtast á allra næstu dögum. Þeir
sem vilja myndir af sínu kynbótahrossi geta haft samband á
berglind@husavikurhestar.is. Verð fyrir eina mynd (lagfærða)
er 3.000 kr og fyrir margar myndir af sama hrossinu (ekki lagfærðar)
7.000 kr.
Frábært Landsmót á Vindheimamelum 4.júlí 2011
Eins og margir hestamenn erum við
nýskriðin heim af Landsmóti. Óhætt er að segja að mótið hafi verið
ótrúlega sterkt og sennilega aldrei verið eins mikið af
kynbótahrossum í hæsta gæðaflokki. Það sem stendur þó uppúr eru
nokkrar sýningar og gæsahúðar-augnablik sem eiga eftir að lifa í
minningu margra næstu árin og hafa örugglega lagt nýjar línur. Má
þar nefna skeiðsprettina í ræktunarbússýningunni frá
Efri-Gegnishólum þar sem fjórir stóðhestar riðu gaffal á blindskeiði
og fipaðist enginn þegar þeir mættust og sýningu Söru Ástþórs á
hryssunni sinni Dívu frá Álfhólum á yfirferðar tölti með hendur uppí
loft :) Síðast en ekki síst er svo auðvitað ótrúleg sýning Þórðar
Þorgeirs á Spuna frá Vesturkoti. Held við getum fullyrt að enginn
hafi nokkurn tíman séð eins vel riðna sýningu á eins góðum hesti og
setti Þórður klárlega nýjan standard með þeirri sýningu.
Berglind myndaði heilan helling á mótinu og náði að mynda nánast öll
kynbótahrossin. Nú bíður mikið verk að fara í gegnum og flokka mörg
þúsund myndir en þær fara vonandi að týnast inn á næstu dögum og
látum við vita af því. En látum hér fylgja nokkrar myndir til að
byrja með, hver úr sinni áttinni. Á síðustu tveim eru þau Gígja og
Jens Einars en hann brá á leik eftir að hafa séð þessa fínu mynd af
Gígju og stillti sér upp við blómapottana inní hringnum :)
Vindóttur foli undan Dúsu (8,40) og Glym frá
Innri-Skeljabrekku 26. júní 2011
Dúsa kastaði nú í vikunni og fengum
við gullfallegan vindóttan stjörnóttan hest undan Glym frá
Innri-Skeljabrekku. Þetta er fimmta hestfolaldið í röð hjá henni og
erum við orðin frekar langeyg eftir hryssu undan henni. En folinn er
gríðarlega flottur og enn eitt stóðhestsefnið. Skellum hér með einni
mynd af honum og annarri af hryssunni undan
Óperu og Kappa. Hún er ótrúlega gæf
leiðist ekkert að láta leika við sig. "Já sæll" gæti þessi mynd
heitið :)
Sigursteinn tekur á móti hryssum
20. júní 2011
Sigursteinn
er kominn í hólf með nokkrum hryssum hér við Húsavík. Hann er 5 vetra
klárhestur með 8,06 í aðaleinkunn og 8,15 fyrir
hæfileika, 9,0 fyrir tölt og 8,5-9,0 fyrir alla aðra þætti utan við
skeið. Einstaklega geðgóður og skemmtilegur hestur í alla staði. Það
kostar 55.000 undir hann utan við vsk. Þeir sem hafa áhuga á að leiða
hryssur undir hann geta haft samband við Vigni í síma 893-7901.
Firmakeppni Grana 19. júní 2011
Árleg firmakeppni Grana var haldin
16. júní og stilltum við upp nýju liði að þessu sinni. Berglind vék
sæti og tók Bjartur slaginn í staðinn. Þetta var hans fyrsta mót og
var hann alveg í skýjunum og kallaði "Ég er sigurvegarinn" hástöfum
þegar hann reið útaf :) Ekki var svo verra að hesturinn sem hann
fékk að láni heitir líka Bjartur. Vignir keppti á
Sigursteini
og varð í 2. sæti á eftir Gísla Har. á Hraunari. Það voru því tveir
fyrstu verðlauna stóðhestar í efstu sætunum.
Tvö folöld bætast í hópinn
7. júní 2011
Það hefur sennilega verið eitthvað í
loftinu í fyrrinótt því þá köstuðu tvær hryssur hjá okkur.
Gjósta kastaði
rauðstjörnóttri hryssu undan
Sigurvin okkar en þetta var önnur
tilraun okkar til að fá vindótta hryssu undan þeim. Í fyrra kom
brúnn hestur en það er þó huggun að hafa fengið hryssu þó hún hafi
ekki verið vindótt. En þetta verður sennilega síðasta folald Gjóstu.
Svo kastaði Sigurgyða
gríðarlega skrautlegum jarpskjóttum fola sem er undan Kapli frá
Kommu. Kapall er bróðir Kappa, undan Kjarnorku frá Kommu og Álfi frá
Selfossi. Hann er mjög skondinn og boppar um á hágengu brokki eins
og móðirin gerði á sínum tíma :)
Myndir frá Vindheimamelum
7. júní 2011
Komnar eru inn allar myndir sem við tókum á
yfirlitssýningunni á Vindheimamelum.
Við kíktum á yfirlitssýningu á
Vindheimamelum á miðvikudaginn. Þar voru sýnd um 200 hross svo af
nógu var að taka og mikið af úrvals gæðingum. Sigursteinn okkar var
sýndur þarna og hækkaði úr 8,0 í 8,5 fyrir hægt tölt og stimplar sig
vel inn sem frábær fjórgangshestur. Berglind tók heilan helling af
myndum og er nú að vinna í að flokka þær. Myndir munu koma í
tenglalistann undir "Myndir" hér við hliðina.
Sigursteinn í 1. verðlaun 31.maí 2011
Sigursteinn
frá Húsavík fór í dag í kynbótadóm á Vindheimamelum og endaði með
8,06 í aðaleinkunn. Hann fékk 7,91 fyrir sköpulag og 8,15 fyrir
hæfileika. Sköpulagseinkunnin kom okkur verulega á óvart en við
vorum viss um að hann færi vel yfir áttuna enda þykir okkur hann
bara nokkuð fallegur. En við erum þræl sátt við 8,15 í
hæfileikaeinkunn á 5 vetra klárhesti :)
IS-2006.1.66-017 Sigursteinn frá Húsavík
Mál (cm): 142 131
138 66 148 35 48 43 6.7 30.5 19
Aðaleinkunn: 8,06
Sýnandi: Bjarni Jónasson
Sköpulag: 7,91
Kostir: 8,15
Höfuð:8,0
4) Bein neflína H) Smá augu Háls/herðar/bógar: 8,0
1) Reistur Bak og lend:7,5
3) Vöðvafyllt bak K) Grunn lend Samræmi:8,5
2) Léttbyggt 4) Fótahátt D) Afturstutt Fótagerð:7,5 Réttleiki:7,5
Framfætur: A) Útskeifir Hófar:8,0
4) Þykkir hælar Prúðleiki:7,0
Tölt:9,0
1) Rúmt 2) Taktgott 3) Há fótlyfta 5) Skrefmikið Brokk:8,5
2) Taktgott 4) Skrefmikið Skeið:5,0 Stökk:9,0
1) Ferðmikið 4) Hátt 5) Takthreint Vilji og geðslag:9,0
2) Ásækni 4) Þjálni Fegurð í reið:8,5
2) Mikil reising 4) Mikill fótaburður Fet:8,5
1) Taktgott 3) Skrefmikið Hægt tölt:8,5
Hægt stökk: 8,5
Fyrsta folald ársins
26.maí 2011
Fyrsta folald ársins kom í heiminn í
fyrradag. Ópera
(7,86) kastaði brúnni hryssu undan Kappa frá Kommu. Hún er stór og
mjög falleg með "Kappa-háls", hátt settan og grannan. Ekki spillir
svo fyrir að hún veður um á hágengu tölti :)
Suðburðarfrí 26.maí 2011
Lítið hefur verið um fréttaflutning hjá
okkur síðkastið því Berglind skrapp í 10 daga sauðburðarfrí í
Gunnarsstaði. Þó ekki sé mikið frí fólgið í sauðburðarvinnu þá er þetta
sérlega skemmtilegur tími. Veðurguðirnir voru bændum ekki sérlega
hliðhollir svo ekki var hægt að setja fé út á tún. Þrátt fyrir það gekk
allt vel og fénu ætti ekki að hafa orðið meint af. Bjartur var hæst
ánægður með að brasa í fjárhúsunum og hjálpa afa sínum að keyra
dráttarvélarnar. Myndir úr sauðburði á Flickr síðu Berglindar
hér.
Kappi kominn í Fellskot
6.maí 2011
Kappi er mættur í Fellskot og byrjaður að
sinna merum. Mikið hefur verið pantað undir hann og hver að verða
síðastur að tryggja sér pláss. Þeir sem eiga pantað geta haft samband
við Maríu í S: 899-9612 þegar þeir vilja koma með hryssurnar. Greiða
þarf staðfestingargjald, 25.000 m.vsk. sem er óafturkræft. Það þarf að
greiðast áður en hryssunum er haldið. Hægt er að millifæra á reikn.
0567-14-400060 kt. 630708-0790. Eða hafa samband á berglind@husavikurhestar.is
eða S: 868-9952.
Stóðhestadagurinn
1.maí 2011
Segja
má að við höfum haldið okkar eigin stóðhestadag í dag. Bessi undan
Dúsu (8,40) og Auði frá Lundum er eina stóðhestsefnið í 2010
árganginum enda vorum við óvenju heppin með kynjahlutfallið það
árið. Hann fær ekki að vera í stóðinu lengur og settum við hann í
girðinguna með hinum gröddunum. Til að auðvelda honum ný kynni tókum
við tvo í burtu svo hann er bara með tveim sem eru nær honum í
aldri. Við notuðum tækifærið og smelltum nokkrum myndum af þeim.
Búi frá Húsavík
M: Dúsa (8,40) F: Hróður f. Refsst.
Sigurvin frá
Húsavík M: Miskunn F: Glymur f. Innri-Sk.
Maríus frá
Húsavík M: Skrýtla (8,10) F:Kappi f. Kommu
Hugað að ungviðinu
30.
apríl 2011
Veðurblíðan hefur verið ótrúleg hjá
okkur undanfarið og fer þurrkur að verða það eina sem hamlar gróðri.
Eitthvað sem við eigum nú ekki að venjast hér fyrir norðan á þessum
árstíma. Það þarf þó að gera meira en nota blíðuna til útreiða svo
við skelltum okkur í dag í smá vinnu í stóðinu. Tókum nánast allt
stóðið heim í hús í Steindal, klipptum hófa og gáfum ormalyf.
Tryppin eru nú flest róleg og vel gæf en eru þó mishress með að vera
tekin og mýld. Á morgun er svo stefnan að gelda tvo fola enda eru
þeir orðnir stórir og þroskaðir. Hér fyrir neðan eru tvær myndir sem
við tókum í dag. Á fyrri myndinni er Bessi sem er eina
stóðhestsefnið í 2010 árganginum. Hann er undan
Dúsu (8,40) og Auði frá Lundum,
mjög stór og myndarlegur foli með flottar hreyfingar. Á seinni
myndinni er svo Siddi í Steindal sem við leigjum af land fyrir
stóðið. Þarna er karl í gamla fjósinu þar sem kennir ýmissa grasa :)
Ólánsmerarnar komnar á hús 18.
apríl 2011
Við tókum á dögunum inn þær
DölluBirnu-dóttur og
Gustuk Gusts
frá Hóli-og Gjóstu-dóttur.
Þær eru báðar hálfgerðar ólánshryssur og hafa því ekki verið í
þjálfun undanfarið. Gustuk er á sjötta vetur og lofaði nokkuð góðu
en var eitthvað skrýtin síðasta sumar. Sem skýrðist allt þegar hún
kastaði í lok ágúst og virðast hún og Sigursteinn átt smá gaman
saman haustið áður. Dalla var búin að vera í þjálfun í vetur, orðin
verulega góð og stefndum við með hana í kynbótadóm í vor. Snemma í
febrúar festi hún svo afturfót í bandinu, fékk töluverðan áverka á
fótinn og hálsinn og sleit vöðva í baki. Þetta leit því alls ekki
vel út og töldum við að henni yrði ekki riðið framar. En hún hefur
jafnað sig ótrúlega og ætlum við nú að athuga hvort hún hafi kannski
bara jafnað sig alveg.
Tamningar ganga
annars vel og stóðhestarnir báðir,
Bogi og
Dáti, í fínni framför. Einnig er
Blettur
Klettssonur að verða verulega skemmtilegur og tókum við nokkrar
myndir af honum í dag. Hann er að verða dillandi mjúkur á tölti og
er efni í skemmtilegan keppnishest.
Sigursteinn frá Húsavík
11.
apríl 2011
Við
stefnum að því að Sigursteinn verði til afnota hér á Húsavík í sumar.
Nákvæmar dagsetningar velta á því hvernig sýning gengur í vor.
Góð ferð í Skagafjörðinn 4.
apríl 2011
Á föstudaginn brugðum við undir
okkur betri fætinum og skelltum okkur á Krókinn á stóðhestaveisluna.
Þetta er ótrúlega flott framtak og vonandi komið til að vera. Heimir
og Hulda voru mjög skemmtilegir kynnar og náðu upp góðri stemmingu í
húsið. Þarna voru nokkrir hestar sem umfram aðra gripu augað, t.d.
Álmur frá Skjálg, Gangster frá Árgerði og Óskasteinn frá Íbishóli.
Svo var mjög gaman að sjá Auði Karen á Friðrik sínum, ótrúlega flott
par þar á ferðinni. Hún hefur greinilega einstakt jafnvægi og
hesturinn eins þjáll og geðgóður og hugsast getur. Svo er nú ekki
hægt annað en að minnast á Ölfu frá Blesastöðum sem við vorum að
berja berum augum í fyrsta skipti, verst að við vorum eiginlega
orðlaus svo það er ekki hægt að skrifa mikið :)
Á
laugardeginum kíktum við svo í Narfastaði og sáum
Sigurstein
(undan Miskunn og Hrym) og vorum mjög ánægð með hann. Hann er alltaf
að bæta sig svo við erum bara bjartsýn á framhaldið. Einnig kíktum
við á Sigurvin
(undan Miskunn og Glym) sem er búinn að vera rúmlega mánuð hjá
Barböru á Hofi og tókum hann heim. Hann veiktist fljótlega eftir að
hann kom þangað og er ekki búinn að ná sér almennilega ennþá svo
hann fer í frí í bili. Við vorum þó ánægð með það litla sem náðst
hefur að temja hann og útlitið á honum sem var nokkuð betra en við
áttum von á þó enn vanti nokkuð uppá að það sé boðlegt fyrir
stóðhest.
Nýtt myndband af Kappa frá 2008 21. mars 2011
Við höfum nú sett á netið myndband af Kappa frá því hann var 4. vetra á
Landsmóti 2008. Þetta er myndbandið eins og við fengum það óklippt frá
Plús-film. Einnig höfum við uppfært síðuna hans á Stóðhestavefnum, hana
má sjá
hér.
Mývatn Open 12. mars 2011
Við
skelltum okkur á Mývatn í gær. Mótið var stórgott og veðrið
eins best verður á kosið, stafalogn og heiðskýrt. Við
smelltum af slatta af myndum í tölti A og stóðhestakeppninni
sem eru nú komnar á netið. Þeir sem vilja fá ákveðnar myndir
til eignar geta haft samband við Berglindi á
berglind@husavikurhestar.is eða í 868-9952.
Hér eru allar myndirnar. Smellið
svo á eitthvert af nöfnunum hér fyrir neðan til að sjá
myndir af hverjum og einum.
Úrslit tölt B
1. María Marta Bjarkadóttir- Víkingur frá Úlfsstöðum 6,83
2. Baldvin Kr. Baldvinsson- Mist frá Torfunesi 6,67
3. Stefanía Árdís Árnadóttir- Vænting frá Akurgerði 6,0
4. Páll Viktorsson – Taktur frá Hestasýn 5,67
5. Auðbjörn Kristinsson- Svala frá Enni 5,17
Úrslit skeið
1. Páll Viktorsson- Kóngur frá Lækjarmóti 8.44
2. Svavar Hreiðarsson- Jóhannes Kjarval frá Hala 8.68
3. Höskuldur Jónsson- Sámur frá Sámsstöðum 8.96
Úrslit tölt A
1. Stefán Friðgeirsson- Saumur frá Syðra-fjalli 6,97
2. Sölvi Sigurðarson- Nanna frá Halldórsstöðum 6,80
3. Elvar Einarsson – Lárus frá Syðra-Skörðugili 6,67
4. Vignir Sigurðsson – Prinsessa frá Garði 6,63
5. Ásdís Helga Sigursteinsdóttir – Gýgja frá Úlfsstöðum 6,60
Úrslit stóðhestakeppni
1. Blær frá Torfunesi – Erlingur Ingvarsson 8,62
2. Tristan frá Árgerði- Stefán Birgir Stefánsson 8,50
3. Möttull frá Torfunesi – Lilja 8,46
4. Steinar frá Sámsstöðum- Höskuldur Jónsson 8,38
5. Dagur frá Strandarhöfði- Stefán Friðgeirsson 8,34
Listi yfir hryssur sem hafa fengið við Kappa 9. mars 2011
Við höfum til gamans og fróðleiks
tekið saman lista yfir hryssur sem hafa fengið við Kappa síðustu ár.
Verð á tolli er 150.000
með öllu (hólfagj. sónarsk. og vsk.)
Stóðhestar í Skagafirði
2.mars 2011
Við kíktum í Skagafjörðinn um
síðustu helgi og litum á stóðhestana sem við eigum þar.
Sigursteinn
(undan Miskunn
og Hrym) er á Narfastöðum hjá Bjarna Jónasar og lofar góðu eins og
við var að búast. Það virðist ekkert vera því til fyrirstöðu að hann
verði sýndur í vor. Bogi
(undan Dúsu og
Baugi) var á Hofi hjá Barböru Wenzl. Hann var búinn að vera þar í
mánuð og orðinn nokkuð taminn. Við tókum hann heim en skildum
Sigurvin
(undan Miskunn og Glym) eftir í staðinn. Við höfum aðeins riðið á
Boga eftir að hann kom heim og líst okkur mjög vel á hann. Hann er
kominn vel af stað í gangsetningu og fer vel undir.
Þorramót Grana á nýju félagssvæði
19.
febrúar 2011
Fyrsta mót Grana á nýja
félagssvæðinu í Saltvík var haldið í dag. Góð þátttaka var á mótinu,
flott veður og gaman að máta hesta og menn við framtíðar
hesthúsahverfið. Við létum ungmennafélagsandann ráða mættum með þá
Simbað og
Blett sem
báðir eru á fimmta vetur og ekki mikið tamdir en efnilegir. Þeir
voru alveg í bremsu og ekki á því að sýna það sem þeir þó geta. Nóg
var þó af góðum hrossum og Granamenn greinilega vel hestaðir þessa
dagana. Útsýnið þarna er einstaklega fallegt með fóann og
Kinnafjöllin í baksýn. Reiðhöllin er risin og verður vonandi tilbúin
innan tíðar en ekkert hesthús er þó komið.
Fullorðnir:
Börn, þátttakendur:
1. Einar V. Einarsson og
Rausn frá Valhöll
2. Gísli Haraldsson og
Hraunar frá Húsavík
3. María Marta
Bjarkadóttir Víkingur frá Úlfsstöðum
4. Svanhildur Jónsdóttir
Greifi frá Hóli
5. Einar Gíslason og
Bjarklind frá Húsavík
Berta María
Dagný Anna
Iðunn Bjarnadóttir
Vignir Már
Folaldasýning í Saltvík
13.
febrúar 2011
Í gær, laugardaginn 12. febrúar, var
haldin folaldasýning í Saltvík. Við mættum með 4 folöld, 2 hryssur
og 2 hesta. Árangurinn var nú framar vonum og voru þau öll í efstu
sætum í sínum flokkum. Úrslit voru eftirfarandi:
Hestar:
Hryssur:
1. Bessi frá Húsvik,
eig. og rækt. Vignir Sigurólas.
F: Auður frá Lundum
M: Dúsa frá Húsavík
2. Hjörtur frá Húsavík,
eig. og rækt. Berglind Sigurðard.
F: Sigurvin frá Húsavík
M: Gjósta frá Möðrual
3. Hlynur f.
Víðivöllum-Fremri, eig. Erlingur og Diljá
F: Vökull frá Síðu
M: Albína frá
Lambleiksstöðum
1. "Jörp" frá Húsavík,
eig. og rækt. Vignir Sigurólas.
F: Kappi frá Kommu
M: Sigurgyða frá Húsavík
2. Draumadís frá Garði,
eig. og rækt. Enrice og Guðmundur
F:Glymur frá
Innri-Skeljabrekku
M: Náttdís frá Garði
3. Óskhyggja frá
Húsavík, eig. og rækt. Vignir og Vilberg
F: Fróði frá Staðartungu
M: Ópera frá Möðrufelli
Hér eru svo nokkrar myndir frá
sýningunni, á fyrstu myndinni er Bessi og á annarri er Hjörtur.
Ný hross á sölusíðunni
1.
febrúar 2011
Glæsir og Hjörtur eru nú til sölu
hjá okkur. Glæsir er fallegur foli á fimmta vetur, efni í fínasta
reiðhest á góðu verði. Hjörtur er á fyrsta vetri, stór og fallegur
og með mikinn fótaburð. Sjá nánar um þá
hér.
Kapall frá Kommu
18. janúar 2011
Þessar myndir eru af Kapli frá Kommu
sem er að fara á þriðja vetur. Hann er bróðir Kappa, undan Kjarnorku
frá Kommu og Álfi frá Selfossi. Jafnframt er hann síðasta afkvæmi
Kjarnorku sem þurfti að fella fyrir aldur fram eftir að hún
fótbrotnaði. Eins og myndirnar sýna er Kapall einstaklega bolléttur
og fínlegur foli, faxprúður og stór. Okkur þykir hann mjög líkur
Kappa þegar hann var á hans aldri nema að Kapall er faxprúðari.
Einari Gíslason
hestamaður hér á Húsavík tók þessar myndir af honum snemma síðasta
sumar þegar hann var í merum. Enn eru laus 2-3 pláss hjá Kapli á
seinna tímabili en hann verður í Heiðarbót í Reykjahverfi. Þeir sem
hafa áhuga á að komast undir hann þá geta haft samband við Vigni í
síma 893-7901. Til að fyrirbyggja misskilning er kannski rétt að
taka fram að holdafar Kapals er í góðu lagi þó einhver gæti haldið
annað :)
Stóðhestarnir farnir í þjálfun
3.
janúar 2011
Skruppum í dag með
Sigurstein til Bjarna á Narfastöðum og
með Boga til Barböru
á Hofi. Sigursteinn er að fara á fimmta vetur og verður vonandi sýndur í
kynbótadómi í vor. "Vefstjóri" prufaði hann í gær og varð ekki fyrir
vonbrigðum. Ofsalega skemmtilegur hestur hér á ferðinni enda var honum
óðara gefið vinnuheitið Rjóma-Gráni :) Látum hér fylgja með mynd af Boga
þegar hann mætti í Hof og aðra af þeim Þórarni og Vigni á leið í reiðtúr
á þeim frændum Boga og Dáta.
Úttekt á tamningahrossum
2.
janúar 2011
Þá er tamningamaðurinn haldinn á vit
ævintýranna í Þjóðólfshaga þar sem hann verður í verknámi fram á vorið.
Tamningarnar gengu vel og erum við mjög ánægð með útkomuna þó tíminn
hafi ekki verið langur. Þetta eru hrossin sem hann var með og smá umsögn
um þau. Efnilegustu í hópnum er sennilega 3 stóðhestar, Bogi, Dáti og
Sigursteinn.
Þægur
og rólegur foli með ágætan vilja. Brokkið frekar fjórtaktað en
ásetugott. Kominn vel af stað í gangsetningu. Fer í frí núna.
F:
Hrymur
(8,20)
M: Miskunn
(7,58)
Rosalega efnilegur foli, er þegar orðinn mjög góður en á nóg
inni enn. Frábært geðslag og ganglag. Fer núna í þjálfun hjá
Bjarna Jónasar.
Eygló og Sigursteinn
27.
desember 2010
Við smelltum í gær nokkrum myndum af þeim
Eygló sem er undan
Kæti og Eiði frá
Oddhóli og Sigursteini
sem er undan Miskunn
og Hrym frá Hofi. Þau eru nú hvorugt í góðu formi en það er þó allt í
áttina. Við erum enn að læra á nýju fínu myndavélina eins og þessar
myndir bera með sér :/ Það kemur þó vonandi með tímanum og þá fara
e.t.v. að læðast inn myndir í fókus...
Tamningar á fullu
23.
desember 2010
Nóg hefur verið að gera undanfarið. Þórarinn
mætti um miðjan mánuðinn og eru tamningar á fullum gangi hjá honum í
Saltvík. Þar er hann með átta tryppi frá okkur og tvö frá Bjarna Páli.
Sex af okkar eru á fjórða vetur og tveir folar á fimmta vetur. Að öðrum
ólöstuðum er nú Dáti
(undan Birnu og
Hágangi) sennilega álitlegastur af okkar tryppum. Hann er ótrúlega
yfirvegaður með stórt og fallegt skref og lausan gang. Við náum vonandi
að taka myndir af þeim öllum en hér eru myndir af þeim
Sigurvin sem er
undan Miskunn og
Glym frá Innri-Skeljabrekku og Gýg sem er undan Gýgjari frá
Auðsholtshjáleigu og Gjóstu
en þetta var í fyrsta skipti sem farið var á bak á hann.
Gamlar og góðar 17.
nóvember 2010
Það er ekki frá miklu að segja þessa dagana.
Við skreppum á bak þegar tími, færi og veður bjóða uppá það. Þau hross
sem við erum helst að ríða á eru Dalla, Eygló, Blettur, Sigursteinn og
Simbað. Vel gengur með þau öll og förum við vonandi að ná myndum af þeim
einhvertímann á næstunni. Meðan engar nýjar myndir eru til verður bara
að birta gamlar :) Þessar eru af Óperu og Berglindi á Bautatölti 2008
þar sem þær fóru nú bara einn hring á hægu tölti því Ópera reyndist
hölt. Hin myndin er svo af Sigri og Lilju, við vitum ekki á hvaða móti
en myndin er virkilega flott. Einnig rákumst við á videó af Óperu sem
við skelltum á YouTube. Þar er hún búin að vera á járnum í rúman mánuð
eftir að hafa verið gerð reiðfær á fjórða vetur.
Nýtt kynbótamat
29. október 2010
Búið er að reikna nýtt kynbótamat
eins og flestum hestamönnum er kunnugt. Fjögur hross í okkar eigu er
með 120 stig eða meira, efst er þó Díva sem fórst aðeins sex vetra
gömul.
Klakinn frá Skagaströnd 120 stig
(við eigum hlut í honum)
Þess má einnig geta að Kappi er með
133 stig fyrir fegurð í reið sem er það hæsta sem nokkurt hross er
með. Á myndinni er Díva sem við söknum sárt og gæfum mikið fyrir að
hafa í ræktun hjá okkur enda var hún einstakur gæðingur.
Alvara lífsins tekur við hjá Dáta
18. október 2010
Við
höfum aðeins verið að ríða út undanfarið eins og fram hefur komið. Á
dögunum bættust svo í hópinn tveir graðhestar,
Sigursteinn sem er að fara á fimmta
vetur undan Hrym frá Hofi og
Miskunn og
Dáti sem er undan
Birnu og Hágangi frá Narfastöðum.
Sigursteinn er nokkuð taminn en hann var hjá Bjarna Jónasar í fyrravetur
og fór mjög vel af stað. Dáti er að fara á fjórða vetur og erum við rétt
að byrja að temja hann. Við höfum mikla trú á honum enda stendur gott að
honum auk þess sem hann er gríðarlega stór og myndarlegur, lofthár og
hálslangur. Aldrei að vita nema þeir mæti báðir á kynbótabrautina næsta
vor :)
66 hryssur fengnar við Kappa í sumar
17. október 2010
Búið er að staðfesta fyl í 66
hryssum eftir sumarið og því nóg verið að gera hjá Kappanum. Meðal
þeirra sem eru fengnar við honum eru gæðingshryssurnar Hnota frá
Garðabæ, Mön frá Lækjamóti, Þruma frá Skagaströnd, Sending frá Enni,
Gletta frá Ytra-Vallholti, Æðey frá Dalsmynni, Krækja frá
Efri-Rauðalæk, Ösp frá Hólum, Hrísla frá Sauðárkróki og Lyfting frá
Síðu.
Gaman er
einnig að segja frá því að á folaldasýningu í Hestheimum sigraði í
fola-flokki Kári frá Ásbrú sem er undan Kappa og Sömbu frá Miðsitju.
Spennandi foli sem gaman verður að fylgjast með. Sjálfur er Kappi nú
í góðu yfirlæti á Hofi og nýtur haustblíðunnar þar.
8 hryssur með fyli og 8 folöld fædd í sumar
3. október 2010
Nú þegar sumri er lokið er upplagt
að líta á afrakstur ræktunarinnar þetta árið. Við fórum með átta
hryssur undir stóðhesta og eru þær allar fengnar.
Við skruppum í Laufskálarétt um
helgina og sáum þar helling af hrossum og enn meira af fólki. Okkur
áskotnaðist sumarbústaður á Hólum svo við áttum góða helgi. Berglind
hafði ekki farið á réttina síðan hún var á Hólum fyrir sléttum 10
árum og Vignir hafði aldrei farið svo það var kominn tími til.
Einhver viðskipti fóru nú fram á réttunum en við tókum þó ekki þátt
í þeim enda þyrftum við frekar að fækka hrossunum en fjölga þeim :)
Framhalds-tamningar eru aðeins að fara af stað hjá okkur. Þrír
fjögurra vetra geldingar sem voru gerðir reiðfærir síðasta vetur eru
núna á húsi. Það eru Glæsir undan Kaspari frá Kommu, Blettur undan
Kletti frá Hvammi og Simbað undan Sprota frá Hafrafellstungu. Þeir
eru allir þægilegir viðureignar og verður væntanlega hent út þegar
búið verður að nota útúr járningunni.
Dúsa og Skrýtla fengnar
16. september 2010
Við skruppum inní Eyjafjörð í gær og
sóttum Dúsu (8,40) og Skrýtlu (8,10). Þær hafa báðar verið hjá
stóðhestum í dágóðan tíma og tvisvar búið að sóna þær geldar svo
okkur leist ekkert orðið á blikuna enda tvær af okkar bestum merum.
Okkur til mikillar gleði reyndust þær þó báðar fengnar og með nokkuð
stóru fyli svo þær ættu að kasta fyrri partinn í júlí á næsta ári.
Dúsa er fylfull við Glym frá Innri-Skeljabrekku og Skrýtla við Hófi
frá Varmalæk. Gaman var að sjá folöldin eftir svona langan tíma enda
hafa þau stækkað og þroskast mikið. Dúsa er með hestfolald, Bessa,
undan Auði frá Lundum og Skrýtla er með merfolald, Mörtu, undan
Kappa frá Kommu. Bæði eru þau mjög hreyfingafalleg svo við komum
afskaplega sátt eftir þessa ferð.
Í leiðinni komum við við í Kommu hjá Vilberg og skoðuðum tvær
hryssur sem höfðu verið hjá Klakanum frá Skagaströnd sem er undan
Álfi frá Selfossi og Sunnu frá Akranesi. Hann er bara veturgamall en
greinilega vel frjór því hryssurnar voru báðar með stærðar fyljum.
Okkur leist mjög vel á kappann, lofthár, hálslangur og faxprúður.
Við látum hér fylgja með mynd af Klakanum og aðra af meistara
Vilberg á eðalvagni sínum sem kallar ævinlega fram bros enda líkist
hann frekar farartæki sem maður ætti von á að sjá á Indlandi :) Rétt
er að taka fram að Vilberg var að vísa okkur til vegar og leit þess
vegna undan :)
Margt að brasa í blíðunni
6. september 2010
Veðurblíðan hefur verið alveg einstök
undanfarna daga. Við nýttum helgina því vel og stússuðumst í kringum
hrossin, keyrðum heim rúllum, rifum gamla gaddavírsgirðingu og fluttum
hross til og frá. Dáti
sem er graðfoli undan Birnu
(8,17) og Hágangi hefur verið uppí Skógahlíð í sumar með nokkrum
hryssum. Hann hefur lokið hlutverki sínu þar í bili og settum við hann
því í hólfið hjá
Sigursteini í Kaldbak. Þeir félagar tókust aðeins á eins og
við var að búast en engin meiðsl hlutust þó af. Við náðum þessari flottu
mynd af þeim og virðist Dáti nú hafa yfirhöndina þó yngri sé. Á myndinni
lengst til hægri er svo jörp hryssa sem fæddist í sumar undan
Sigurgyðu og
Kappa. Hún er mjög álitleg, með rosalega flottan háls og skásetta bóga,
gott ef hún hefur ekki fengið herðablaðið frá föður sínum :)
Slysafangið komið í heiminn
2. september 2010
Gustuk kastaði brúnni hryssu nú á dögunum. Sú stutta hefur
ekki enn fengið nafn en hún kom í heiminn daginn sem Óli pabbi Vignis
var áttræður svo e.t.v. fær nú nafn sem tengist honum. Hún er óskaplega
lítil enda fædd eitthvað fyrir tímann og fyrsta folald að auki. Þrátt
fyrir það er hún mjög spræk, hleypur um og leikur sér eins og folöld
eiga jú að gera. Við þurfum svo væntanlega að færa þær mæðgur heim að
húsinu í Steindal svo þær geti gengið við opið hesthúsið og varist
haustbleytunum sem koma væntanlega á næstu vikum.
Óvæntur "glaðningur"
18.
ágúst 2010
Gustuk er 5 vetra hryssa sem við
eigum undan Gusti frá Hóli og
Gjóstu. Hún er nokkuð efnileg með
góðan fótaburð og fer vel undir manni. Við vorum orðin nokkuð ánægð
með hana síðasta vetur en í sumar hefur hún verið alveg ómöguleg,
kviðmikil og leiðinleg til reiðar. Þrátt fyrir að við höfum riðið á
henni og teymt hana töluvert breyttist ekkert. Vignir kom svo heim
einn daginn og var þá búinn að finna skýringuna á öllu saman. Hún er
fylfull og kastar væntanlega núna á næstu vikum !! Ekki nema von að
greyið væri óhress með þessar æfingar okkar :) Hún hefur væntanlega
fengið við
Sigursteini þegar þau voru saman á húsi síðasta haust.
Hinsvegar kannast enginn við að hafa komið að þeim saman en enginn
annar
kemur þó til greina. Slysaföng hafa nú oft reynst gæðingar og vonum
við bara að svo verði nú.
41 hryssa fengu við Kappa í sæðingum
16.
ágúst 2010
Nú liggur fyrir endanleg útkoma úr
sæðingunum hjá Kappa. Niðurstaðan varð sú að fengnar hryssur eru 41 og
er fyljunarhlutfallið 82% sem er frábært, ekki síst í ljósi þess að þar
eru nokkrar hryssur sem illa hefur gengið að koma folöldum í.
Hér er listi
yfir þær hryssur sem sónaðar voru með fyli og dómar hryssnanna. Þetta
eru upplýsingar sem eru allar til í WF svo við erum ekki að birta
neitt sem ekki er opinbert :) Við erum svo að vinna í því að taka
saman eins lista fyrir síðustu 2 ár líka.
Frábær hestaferð
16.
ágúst 2010
Undanfarið höfum við verið á ferðinni í
góðra vina hóp með rekstur hér um sveitirnar. Pestin hefur ekki enn sett
stórt strik í reikninginn hjá okkur svo við vorum með flest hross 4
vetra og eldri með okkur enda er þetta alveg frábær leið til að trimma
þau. Við vorum einstaklega heppin með veður svo þetta var hin besta
skemmtun í alla staði enda reiðleiðirnar hér ekki af verri endanum.
Bjartur og Viðja Karen voru með okkur í bílnum og virtust bara hafa
gaman af þessu stússi. Hér eru nokkrar myndir úr
ferðinni.
Einarsstaðamót 8.
ágúst 2010
Eitt og annað hefur gerst síðan við
skrifuðum fréttir síðast en byrjum bara á helginni. Vignir varði
henni í heyskap en Berglind, Bjartur og Viðja Karen skruppu á
Einarsstaðamót. Mikið var af góðum hrossum og veðrið eins og best
verður á kosið, frekar of heitt ef eitthvað er. Mörg reynd
keppnishross voru á mótinu og er gaman að sjá hesta eins og Tristan
frá Árgerði sem batna með hverju árinu. Ekki er síður skemmtilegt
þegar óþekkt hross stela senunni eins og gráskjótt Nagladóttir,
Þruma frá Akureyri, í eigu
Guðmundar og Helgu á Akureyri
gerði. Þetta var hennar fyrsta mót að okkur minnir og var það eina
sem þau mættu með til leiks og gerði sér lítið fyrir og sigraði bæði
tölt og B-flokk.
Tvö hross
úr okkar ræktun voru á mótinu, Úði og Sigurfari frá Húsavík. Úði
komst í úrslit á A-flokki en var full hlaupaglaður þegar úrslitin
áttu að fara fram. Sigurfari og Þórarinn urðu í 3. sæti í
ungmennaflokki. Hér eru nokkrar myndir af mótinu. Á fyrstu myndinni
eru Þórarinn og Sigurfari, hinar útskýra sig sjálfar.
Uppfærð heimasíða
30. júlí 2010
Við reynum að uppfæra heimsíðuna okkar
jafnóðum og eitthvað gerist en eitt og annað hefur þó trassast í smá
tíma. Síðan unghross
er nýuppfærð og erum við búin að setja dóma aftan við foreldra og ömmur
og afa tryppanna og setja inn nýjar myndir við mörg þeirra. Nokkrar
nýjar myndir eru komnar á heimasíður
stóðhestanna, m.a. tvær myndir af
Sigursteini í
reið á síðunni hans. Einnig er tenglalistinn nýuppfærður og bættum við
nýjum síðum og tókum út slatta af síðum sem hafa ekki verið virkar lengi
eða eru hjá aðilum sem eru aðallega í ferðaþjónustu. Meðal nýrra
heimasíðna eru síður hjá
Guðmundi og Helgu á Akureyriog
Hellulandi.
Frábær helgi að baki
26. júlí 2010
Helgin hér á Húsavík var mjög
skemmtileg hjá okkur. Mærudagar voru um helgina og var bærinn fullur
af fólki sem naut blíðunnar. Við vorum með fullt hús af fólki enda
nefndum við litlu skottuna í gær og fékk hún nafnið Viðja Karen.
Eitt af skemmtiatriðunum á mærudögum var gæðingasýning Grana og var
Vignir þar með Sigurstein. Það gekk ljómandi vel og tók
Sigursteinn
því mjög vel að vera kippt úr hólfi frá hryssum, skreyttur með
borðum og riðið fram og til baka, ferð eftir ferð. Sigursteinn er
fjögra vetra, undan Hrym frá Hofi og Miskunn.
Hugað að stóðinu
12. júlí 2010
Hryssurnar eru farnar að týnast
undir stóðhesta aftur. Í vikunni fórum við vestur í Víðidalstungu
með Sigurgyðu
(7,85) undir Kapal frá Kommu sem er bróðir Kappa, undan Kjarnorku og
Álfi frá Selfossi.
Skrýtla (8,10) er farin undir Hóf frá Varmalæk,
Ópera (7,86)
undir Kappa og Dúsa
(8,40) undir Glym frá Innri-Sklejabrekku.
Gjósta (7,59) er fengin við
Sigursteini
og mun því væntanlega kasta fyrst næsta vor. Á fyrstu myndinni erum
við að líta á graðtittina í blíðunni. Á næstu er hryssan undan
Miskunn og
Dáta sem sýnir
að það eru fleiri en mótorhjól sem fara svo hratt að það þurfi að
halla sér hraustlega inní beygjurnar. Á þriðju myndinni er Hjörtur á
fullri ferð á svifmiklu brokki og á síðustu eru þeir Sigurvin og Dúi
sem er veturgamall foli undan
Birnu (8,10) og Sigursteini.
Jörp Kappadóttir síðasta folald ársins
7. júlí 2010
Sigurgyða
(7,85) kastaði á dögunum jarpri hryssu undan Kappa frá Kommu. Í fyrra
fengum við ekkert nema hestfolöld undan Kappa en núna höfum við fengið
tvær hryssur. Kynjahlutfallið í ár endaði mun betur en síðustu ár, 4
hryssur og 3 hestar.
Sumarblíða
2. júlí 2010
Við höfum loksins fengið jeppann til
baka en það hefur valdið okkur smá vandræðum undanfarið að komst
ekkert með hestakerruna. Hrossin eru tvístruð um alla koppagrundir
og nokkur höfuðverkur að koma graðfolum, folaldsmerum og reiðhrossum
fyrir svo vel sé. Í dag fluttum við folaldsmerar útí Steindal og
lokuðum af þannig að Búi eða hans merar kæmust ekki að girðingunni.
Þessar myndir voru teknar í dag. Á fyrstu myndunum er Hjörtur sem
hefur afskaplega gaman af því að láta horfa á sig. Hann er undan Gjóstu
og Sigurvin
og átti að verða vindótt meri og því hvorki af réttu kyni né réttum
lit en kann öll réttu "múvin". Á síðustu myndinni er
Búi með skutlunum
sínum.
Kappi tekur á móti hryssum í hólfi
29. júní 2010
Kappi hefur verið í sæðingum á
Dýrfinnustöðum það sem af er sumri og gengið mjög vel. Nú er komið að
því að hann taki á móti hryssum í hólfi. Þeir sem eiga pantað eiga að
mæta næstkomandi mánudag á Hof á Höfðaströnd. Honum verður svo sleppt í
hólfið daginn eftir.
Hér meðfylgjandi er myndband af honum í dómnum í vor sem birtist á
vef Eiðfaxa.
Sigursteinn
29. júní 2010
Loksins gafst færi á að ná myndum af
Sigursteini.
Aðstæður eru frekar óheppilegar til myndatöku þar sem reiðvegurinn
er allur í hólum og hæðum en við náðum þó nokkrum myndum. Vignir
hefur aðeins riðið á Sigursteini undanfarið og er hann mjög
skemmtilegur. Alltaf jákvæður, viljugur og með frábært ganglag. Hann
er ekki kominn í neinn burð ennþá en þetta lofar allt mjög góðu.
Sigursteinn
er fjögra vetra, undan Hrym frá Hofi og
Miskunn frá Keldunesi. Seinni
partinn í vetur var hann hjá Bjarna Jónasar á Narfastöðum en var
ekki sýndir frekar en mörg önnur tryppi vegna pestarinnar.
Skrýtla köstuð
28. júní 2010
Skrýtla (8,10) kastaði í fyrrinótt
brúnni hryssu undan Kappa frá Kommu. Vignir var svo heppinn að ná
þeim mæðgum rétt þegar sú stutta kom í heiminn. Við erum að
sjálfsögðu mjög fegin að hafa fengið hryssu en Skrýtla á fyrir fola,
Maríus, undan Kappa sem er mjög álitlegur svo hér er um alsystkini
að ræða. Nú eru kynjahlutföllin orðin jöfn og bara ein hryssa eftir
að kasta svo við krossleggjum fingurna að hún komi líka með hryssu.
Sigurlína og Hjörtur frá Húsavík
27. júní 2010
Þetta eru tvö af folöldunum sem
fæddust hjá okkur í vor. Sá brúni er Hjörtur frá Húsavík, undan Gjóstu
og Sigurvin.
Mjög sperrtur og flottur foli en svo klárgengur að hann brokkar
nánast á staðnum, hver segir svo að piaff sé hrossum ekki meðfætt :)
Jarpa folaldið er Sigurlína frá Húsavík sem er undan
Miskunn og
Dáta. Hún er 12
folald Miskunnar sem hefur reynst einstaklega frjósöm.
Ungfolarnir taka á móti hryssum
26. júní 2010
Óhagstæð kynjahlutföll undanfarin ár
hafa leitt til þess að við erum vel byrg af ungum graðhestum.
Þessa dagana höfum við haldið nokkrum af gömlu merunum okkar undir
þá. Gjósta fór
undir Sigurstein,
Kæti undir
Dáta og
Miskunn og
Birna undir
Búa. Birna var í
sæðingum hjá Kappa og var sónuð fengin en hefur greinilega látið.
Henni hefur gengið illa að halda í sér folöldunum undanfarið og er
svo komið að við erum búin að gefast upp á að keyra hana undir hesta
og ætlum bara að halda henni undir dótturson sinn hann Búa. Hann er
tveggja vetra undan Dúsu frá Húsavík (8,40) og Hróðri frá Refstöðum.
Hann er vel stór, lofthár og fallegur foli og er með 122 í BLUP. Hér
eru nokkrar myndir af honum.
Sól og blíða 13. júní 2010
Einstaklega gott veður hefur verið um helgina og notuðum við tímann til
ýmissa verka. Litla daman er svo vær og góð að hún sefur bara í bílnum á
meðan við gerum það sem gera þarf og Bjartur reynir að hjálpa til. Við
undirbjuggum randbeitingarhólf fyrir reiðhrossin, litum á
folaldshryssurnar og sinntum graðfolunum.
Sigursteinn er kominn heim frá
Bjarna á Narfastöðum en hann hefur verið í pásu undanfarnar vikur vegna
kvefpestarinnar. Vignir er aðeins búinn að prófa hann og líst okkur mjög
vel á gripinn. Vignir er svo þessa stundina í Skagafirði að fara með
Óperu undir Kappa og sækja
Birnu sem er búin að vera í sæðingum og er
fengin við Kappa. Við erum að sjálfsögðu hæstánægð með það en þorum
varla að fagna fyrr en hún kastar lifandi folaldi. Látum hér fylgja með
nokkrar myndir sem við höfum tekið síðustu daga. Á fyrstu myndinni er
rauðblesóttur, glaseygður foli undan Kæti og Hófi, á annarri eru
folöldin undan Óperu (7,86) og
Dúsu (8,40) og á síðustu myndinni er
Dáti undan Birnu (8,17) og Hágangi.
Lítil prinsessa
4. júní 2010
Þann
1. júní eignuðumst við dásamlega litla dömu. Allt gekk þetta eins og
sögu og komu mæðgurnar heim í gær. Bjartur tekur nýja fjölskyldumeðlimum
afskaplega vel og vill ólmur leika við litlu systur. Hann býður henni
dráttarvélar og valtara og skilur ekki alveg að hún hafi ekki áhuga á
þessu flotta dóti :)
Sitt lítið af hverju 31. maí 2010
Við höfum verið svo upptekin af Kappa
undanfarna daga að við höfum ekkert komið að fréttum af hinum hrossunum.
Gjósta kastaði
fyrir viku brúnum hesti undan
Sigurvin okkar sem er vindóttur foli
undan Glym frá Innri-Skeljabrekku. Afkvæmið átti auðvitað að verða jarp-
eða móvindótt hryssa en það er víst ekki auðvelt að fá kyn og liti eftir
pöntunum. Folinn er nú samt mjög fallegur og ber sig vel. Við
tókum graðfolana heim um daginn og klipptum hófana á þeim og gáfum þeim
ormalyf. Á myndinni í miðjunni er hann
Dáti sem er þriggja vetra undan Hágangi
frá Narfastöðum og gæðingamóðurinni okkar
Birnu Baldursdóttur. Hann er
gríðarlega stór og þroskaður eftir aldri, með langan háls og háfættur
svo við bíðum spennt eftir að byrja að temja hann næsta vetur. Á
síðustu myndinni eru svo Bjartur og hryssan undan
Óperu og Fróða frá Staðartungu.
Fyrsta hryssan fengin við Kappa 31. maí 2010
Búið er að staðfesta fyl í fyrstu hryssunni
þetta árið við Kappa. Sú heppna er engin önnur en Hnota frá
Garðabæ sem er með hæstu hæfileikaeinkunn klárhryssa í heiminum að því
er við best vitum. Þetta gæti því verið ræktun á framtíðar heimsmethafa
:)
Kappi hækkaði í 8,51 28. maí 2010
Kappi og Mette stóðu sig frábærlega í dag á
yfirlitinu og hækkaði hann úr 8,35 í 8,51 fyrir hæfileika. Hann fór í
9,5 fyrir stökk og fegurð í reið og endar eins og fyrr segir með 8,51
fyrir hæfileika en hann var einmitt með nákvæmlega þá einkunn fyrir
sköpulag og má því segja að hann sé jafn góður og hann er fallegur :)
Við erum að sjálfsögðu alveg í skýjunum yfir þessu, ekki síst ef rétt er
sem við höfum heyrt að áhorfendur hafi talið hann standa fyllilega undir
þessum tölum. Útkoman er því þessi:
Stökk: 9,5
1) Ferðmikið 2) Teygjugott 3) Svifmikið 4) Hátt
Vilji og geðslag: 9,0 2) Ásækni 5) Vakandi
Fegurð í reið: 9,5
1) Mikið fas 2) Mikil reising 4) Mikill fótaburður
Fet: 8,0
Hægt tölt: 8,5
Hægt stökk: 9,0
Kappi fékk 8,42 í Hafnarfirði 27. maí 2010
Stóra stundin rann upp í dag þegar Kappi
mætti í dóm á Sörlastöðum í Hafnarfirði. Mette gerði sér lítið
fyrir og brunaði með hann suður á vikurvöll því ekkert verður dæmt á
Dalvík í vor en þar er einnig vikurvöllur. Kappinn stóð sig með prýði og
endaði með sömu aðaleinkunn og hann gerði fjögra vetra en var þó að
hækka í raun ef reiknað er eftir sama vægi. Við teljum ekki
útilokað að hann geti hækkað á yfirlitinu. Dómurinn var svona:
Stökk: 8,5
1) Ferðmikið 2) Teygjugott 3) Svifmikið 4) Hátt
Vilji og geðslag: 9,0 2) Ásækni 5) Vakandi
Fegurð í reið: 9,0
1) Mikið fas 2) Mikil reising 4) Mikill fótaburður
Fet: 8,0
Hægt tölt: 8,5
Hægt stökk: 8,0
Rauðblesóttur hestur undan Kæti og Hóf 24. maí 2010
Kæti
kastaði núna í morgun hestfolaldi undan Hóf frá Varmalæk. Hann er
rauðblesóttur, sokkóttur og með vagl í auga. Ekki líta
kynjahlutföllin vel út enn sem komið er en við vonum að þær sem eiga
eftir að kasta komi nú bara með hryssur. Undanfarin ár hefur
gætt mikils ójafnréttis og karlkynið verið allsráðandi svo nú hlýtur
að vera nóg komið.
Kæti er
tuttugu vetra og er þetta hennar tíunda folald. Meðal afkvæma hennar
eru Úði og Skrýtla
(8,10) frá Húsavík. Mikil prýði er af Kæti en hún er mjög framfalleg
og faxprúð, sannkölluð stóðmeri eins og myndin sýnir.
Eigum hlut í Klakanum frá Skagaströnd
24. maí 2010
Við
eigum nú einn hlut í Klakanum frá Skagaströnd. Hann er undan Álfi
frá Selfossi og Sunnu frá Akranesi. Meðal annarra afkvæma Sunnu eru
gæðingarnir Þjóð og Kvistur frá Skagaströnd en Sunna hefur gefið 5
fyrstu verðlauna afkvæmi. Myndin hér til hliðar er fengin af heimasíðu
Jarðbrúar.
Pláss undir Hóf frá Varmalæk til sölu
22. maí 2010
Til sölu eitt pláss undir Hóf frá Varmalæk
núna í sumar. Verð 120.000 kr. Einnig kemur til greina að selja
hlutinn í hestinum alveg. Áhugasamir hafi samband við Vigni í S:
893-7901 eða á vignirsigurola@simnet.is
Brúnn hestur undan Dúsu og Auði frá Lundum
22. maí 2010
Í
nótt kastaði Dúsa
stóru og myndarlegu hestfolaldi undan gæðingnum Auði frá Lundum. Dúsa er
sjálf með 8,40 í aðaleinkunn í kynbótadómi og Auður 8,46 svo við vonum
að þarna sé framtíðargæðingur á ferðinni. Við hefðum nú ekkert haft á
móti því að folaldið hefði verið hryssa því þetta er fjórða hestfolaldið
undan henni. En ætli hann sé þá ekki bara eitt stóðhestefnið í viðbót. Í
gær fórum við svo með Birnu
móður Dúsu inní Skagafjörð þar sem hún verður vonandi sædd við Kappa.
Við erum þó hóflega bjartsýn eftir margra ára óheppni með afkvæmi hennar
og frjósemi.
Fyrsta folald ársins fætt
17. maí 2010
Fyrsta folald ársins fæddist í gærmorgun.
Það var bleikálótt hryssa undan Fróða frá Staðartungu og
Óperu frá Möðrufelli
(7,86). Ópera er undan gæðingamóðurinni Ósk frá Brún og Nagla frá Þúfu.
Við kíktum á þær mæðgur þegar sú stutta var ekki nema nokkurra tíma
gömul. Gaman er að sjá folöldin svo ung því þau virðast elta hvað sem
þau halda að geti verið móðir sín og hélt hún t.d. að Bjartur væri vel
til þess fallinn að passa uppá sig og elti hann um allt :) Hér eru
tvær myndir af Óska*** og ein af Óperu.
Nokkur Kappa-afkvæmi
14. maí 2010
Þessa dagana eru hryssurnar sem voru sæddar
við Kappa í fyrra að kasta hver af annarri. Hérna á svæðinu eru nokkur
Kappa-afkvæmi og tókum við myndir af nokkrum þeirra á helgarrúntinum. Á
fyrstu myndinni er hryssa sem Jón Óli hér á Húsavík á, á annarri
myndinni er veturgamall foli frá Litla-Dal og á þeirri þriðju er Maríus
okkar sem er undan Skrýtlu
frá Húsavík (8,10). Eigendur Kappa-afkvæma mega gjarnan
senda okkur myndir af þeim á berglind@husavikurhestar.is
Kappi skráður í Hafnarfirði
14. maí 2010
Búið er að skrá Kappa á
kynbótasýningu í Hafnarfirði nú í lok mánaðarins. Hann hefur verið
við góða heilsu þrátt fyrir kvefpestina sem herjað hefur á hans
slóðum undanfarnar vikur. Við vonum að það þýði að hann sé búinn að
smitast án þess að verða mjög veikur en eigi það ekki eftir.
Höskuldur dýralæknir skoðaði hann um daginn og mat hann fullkomlega
í lagi svo nú krossleggjum við alla fingur og tær og vonum að ekkert
komi uppá.
Þeir sem
greitt hafa staðfestingargjald fyrir hryssur í sæðingar geta sett
sig í samband við Höskuld dýralækni eða Ingólf á Dýrfinnustöðum
þegar hryssurnar eru að byrja í látum.
Loksins eitthvað að gerast á þessari síðu !!
2. maí 2010
Við höfum verið skammarlega léleg
við að setja inn fréttir á síðuna enda tvö eldgos orðið síðan við
skrifuðum síðast !! Aðal ástæðan fyrir því hefur nú
einfaldlega verið sú að það hefur ekki verið neitt sérstakt í
fréttum hjá okkur. Í apríl tókum við inn tvö af folöldunum,
það voru tveir folar undan Sigurstein,
annar undan Kæti
og hinn undan Birnu.
Gömlu merarnar ráð orðið verr við það að mjólka allan veturinn svo
við ákváðum að venja undan þeim. Báðir eru þeir stórir og
myndarlegir, á myndinni vinstra megin er folinn undan
gæðingamóðurinni Birnu sem ekki hefur enn fengið nafn.
Sigursteinn er enn á Narfastöðum og ber Bjarni honum alltaf jafn
góða söguna og stefnir með hann í dóm í vor. Þessa dagana erum við
að ákveða hvaða hesta við ætlum að nota í sumar, það verða Glymur
frá Innri-Skeljabrekku, Kvistur frá Skagaströnd, Kapall frá Kommu og
e.t.v. Kappi, Gýgjar og einhverjir af folunum okkar hérna heima.
Mikið er af góðum hestum verður á svæðinu í sumar svo úr vöndu er að
ráða.
Á myndinni
hægra megin eru graddarnir í Eyvík, lengst til vinstri er
Sigurvin,
svo Búi,
Bogi,
Dáti og lengst
til hægri er skjóttur foli sem
Ingólfur og Karin eiga.
Kappi og Sigursteinn í góðum gír
11.
mars 2010
Vignir skrapp í gær í Skagafjörðinn og leit
á Kappa sem er hjá
Mette og Sigurstein
sem er hjá Bjarna Jónasar. Báðir voru þeir í fínu formi og virðist ganga
mjög vel með þá. Sigursteinn er mjög jákvæður og skemmtilegur og farinn
að valda töltinu ágætlega en vantar meira jafnvægi enn sem komið er.
Allt virðist þó benda til að hann verði að minnsta kosti verulega góður
hestur. Kappi var sömuleiðis á réttri leið svo við erum bara kát með
stóðhestana. Myndavélin var höfð meðferðis en ekki voru nú teknar margar
myndir á hana. Þó náðust þessar myndir af Sigursteini.
Notkun ákveðin fyrir Kappa 2010
11.
mars 2010
Stefnt er með hann á Landsmót og því ákveðið
að hafa hann á einu löngu gangmáli á Hofi á Höfðaströnd. Verð: 150.000
kr. með öllu, þar af 25.000 kr. í staðfestingargjald sem er óafturkræft. Hægt er að panta með því
að senda tölvupóst á
berglind@husavikurhestar.is eða hringja í s:
868-9952. Þeir sem hafa haft samband og haft áhuga á að komast undir
geta því haft samband núna og gengið frá pöntunum.
Loksins koma myndir af vetrarstarfinu
28.
febrúar 2010
Það var nú löngu kominn tími til að við
tækjum myndir af hrossunum sem eru á járnum í vetur. Í dag var fínasta
veður og færi og notuðum við tækifærið og smelltum myndum af þeim
Andreu og
Gustuk. Andrea er
brúna hryssan en hún er undan
Sprengingu og Andvara frá Ey. Hún er
stór og falleg, með fínan fótaburð og brokk sem minnir stundum á "Suðra-brok". Gustuk er
rauða hryssan en hún er undan
Gjóstu og Gusti frá Hóli. Hún er á
fimmta vetur, hálsfalleg, fríð og með góðan prúðleika. Hún er með góðar
gangtegundir og mjög mikinn fótaburð.
Skellibjalla seld
25.
febrúar 2010
Hágangsdóttirin
Skellibjalla er seld. Hún er skemmtilega ættuð og ber lit sem gleður
augað. Óskum við nýjum eigendum til hamingju :)
Frumtamningum lokið í bili
12.
febrúar 2010
Það
hafðist að lokum að gera alla folana á fjórða vetur reiðfæra. Simbað
hans Bjarts (undan Sprota frá Hafrafellstungu), Blettur (undan Kletti
frá Hvammi) og Glæsir (undan Kaspari frá Kommu) eru allir komnir útí
stóðið í Steindal. Mjög vel gekk með þá alla og virðast þeir allir vera
auðveldir og með fínasta ganglag. Fjórði folinn er svo stóðhesturinn í
árganginum, Sigursteinn
en hann er í framhaldstamningu hjá Bjarna Jónasar á Narfastöðum sem
lætur mjög vel af honum og bíðum við spennt eftir að komast í
Skagafjörðinn og kíkja á karlinn. Myndina hér til hliðar tókum við þegar
við slepptum Glæsi aftur útí stóð einn góðviðrisdaginn af mörgum
undanfarið.
Bóas seldur
27.
janúar 2010
Bóas frá Húsavík er seldur. Móðir hans er
Dúsa okkar sem er
undan Birnu
Baldursdóttur og Ypsilon frá Holtsmúla. Dúsa og Birna eru báðar með mjög
góð fyrstu verðlaun og var Dúsa í fjórða sæti í flokki 6 vetra hryssa á
Landsmótinu 2006. Faðir Bóasar er
Kappi frá Kommu sem flestir kannast
við. Kaupendur er vaskur hópur sunnlendinga sem hefur skipt honum í 60
hluti. Við munum eiga einn hlut í honum áfram til gamans. Við óskum
nýjum eigendum til hamingju og vonum að Bóas verði þeim til sóma um
ókomin ár :)
Mikið spurt um Kappa
12.
janúar 2010
Mikið hefur verið spurst fyrir um Kappa
undanfarið. Margir eru að velta fyrir sér hver stefnan sé með hann og
hvar hann verði næsta sumar. Því miður getum við lítið sagt að svo
komnu. Kappi er í þjálfun hjá Mette og er stefnt með hann á Landsmót.
Gangi það allt eftir verður hann líklega á einu löngu gangmáli eftir
mótið. Það mun því ekki liggja endanlega fyrir hvernig þetta verður fyrr
en líður á vorið.
Kappasonur sigrar folaldasýningu
3.
janúar 2010
Um síðustu helgi var haldin folaldasýning í
Hringsholti á Dalvík. Þar sigraði í hestaflokki Kopar frá Jarðbrú sem er
undan Kappa og Spennu frá Dæli. Fyrsti árgangurinn undan Kappa er fæddur
síðasta vor svo gaman verður að sjá hvað þau gera á folaldasýningum nú í
vetur. Af Kappa sjálfum er það að frétta að hann er kominn í Þúfur til
Mette og væntanlega byrjaður í léttu trimmi. Við gerum okkur væntanlega
ferð í Skagafjörðinn þegar líður á veturinn og kíkjum á hann og
Sigurstein.
Nýtt ár heilsar 4.
janúar 2010
Tíminn flýgur og enn eitt árið heilsar. Við
höfum nýtt jólafríið ágætlega og skruppum m.a. austur í Gunnarsstaði þar
sem Þórarinn er að temja þar til skólinn á Hólum byrjar aftur. Hann er
m.a. með Simbað hans Bjarts sem er undan Sprota frá Hafrafellstungu og
Dröfn frá Akureyri sem Vilberg í Kommu átti. Mjög vel hefur gengið að
temja hann og er hann alþægur, með mjög gott ganglag og hágengur en
nokkrum númerum of lítill. Vignir hefur verið að temja Skreytingu (undan
Kæti og Þristi frá
Feti) og er hún í mikilli framför. Framanaf var hún alveg brokklaus en
það er að breytast og tekur hún brokkið á ferðinni og er það skrefastórt
og með miklum fótaburði. Hver veit nema hún endi á kynbótabrautinni í
vor :) Sömuleiðis hefur gengið vel með
Sigurstein sem er graðfoli á fjórða
vetur undan Miskunn
og Hrym frá Hofi. Við höfum mikla trú á honum og er hann á leið í
framhaldstamningu í Skagafjörð á morgun til Bjarna Jónasar. Á fyrstu
myndinni eru Simbað og Þórarinn, á annarri er Sigursteinn og á þeirri
síðustu er Dáti sem
er undan Birnu og
Hágangi en þessi mynd leyndist á vélinni þegar við sóttum myndir í hana.
Vorblíða 14.
desember 2009
Mjög gott veður hefur verið hér undanfarna
daga. Snjóinn hefur allan tekið og tíðin minnir alls ekkert á vetur.
Gallinn við snjóleysið er þó sá að það verður eiginlega aldrei alveg
bjart úti. Hrossin voru öll komin á gjöf en vegna blíðunnar tókum við
þau fullorðnu sem eru í mjög góðu standi og settum þau aftur á beit.
Simbað hans Bjarts er svo farinn austur í Gunnarsstaði í tamningu en
Þórarinn bróðir Berglindar er á Hólum og ætlar að temja á Gunnarsstöðum
í jólafríinu.
Folaldshryssurnar komnar á gjöf 29.nóvember 2009
Haustið hefur verið frekar gott
fyrir útigangshrossin og ekki verið þörf á að gefa þeim hey. Mikið
hefur þó snjóað hér síðustu daga svo við ákváðum að færa
folaldsmerarnar úr hólfinu sem þær voru í og heim í Steindal þar sem
þær fá rúllur og ganga við opið hesthús. Alltaf er gaman að sjá
folöldin leika sér og spá í hreyfingar þeirra þó þau séu almennt
ekki glæsileg á þessum tíma. Hundurinn okkar Katla vekur yfirleitt
mikla lukku meðal folaldanna og gaman að fylgjast með þeim montast í
kringum hana. Þau folöld sem okkur finnst sýna hvað skemmtilegastar
hreyfingar eru Maríus (Undan
Kappa og
Skrýtlu) og Sigurvon (Undan Hófi og
Miskunn).
Myndavélin var meðferðis en því miður snjóaði svo mikið að hún kom
að litlu gagni.
Vegna
snjókomunnar er oft fínasta færi í bænum og er Vignir aðeins farinn
að ríða á Sigursteini sem er stóðhestur á fjórða vetur og Skreytingu
sem er Þristsdóttir á sjötta vetur. Um daginn bitist svo frétt af
Sigurvin
(undan Glym frá Innri-Skeljabrekku og Miskunn) á heimasíðu Glyms á
www.glymur.blog.is
Ný hross á sölusíðunni
18.
október 2009
Við vorum að bæta þrem folum sem fæddust nú í vor
á sölusíðuna. Spennandi og stórættaðir folar, m.a. tveir undan Kappa frá
Kommu og fyrstu verðlauna hryssum.
Loksins koma fréttir
28.
september 2009
Af tæknilegum ástæðum höfum við ekki
getað uppfært síðuna hjá okkur undanfarið en nú verður gerð bót á
því. Við erum búin að taka fjóra fola á hús sem allir eru að fara á
fjórða vetur. Fyrstan ber nú að nefna
Sigurstein sem er grár graðfoli
undan Hrym frá Hofi og Miskunn. Mjög fallegur hestur sem við höfum
mikla trú á. Svo eru þrír geldingar, Blettur undan Klett frá Hvammi,
Glæsir undan Kaspar frá Kommu og Simbað undan Sprota frá
Hafrafellstungu. Folarnir fara vel af stað en við reiknum nú með að
vinna töluvert með þá í hendi áður en við förum að ríða á þeim.
Bjartur er mikið með okkur í hesthúsinu og er mjög áhugasamur um
tamningarnar en einum of hjálplegur á köflum. Hann á Simbað og hefur
sérstaklega áhuga á að stjórna sjálfur í honum. Sem betur fer er
hann ótrúlega þægur og taugasterkur og sýnir ungum eiganda sínum
mikið umburðarlyndi. Ekki er síðra að folinn er með frábært ganglag
og flottan fótaburð.
Aðrar
fréttir eru þær að nú eru samtals 83 hryssur fengnar við Kappa. Enn
er möguleiki að þeim geti fjölgað því nokkrar hryssur eru hjá honum
ennþá. Við látum hér fylgja með tvær myndir af þeim félögum Bjarti
og Simbað.
Sorg og gleði í hrossaræktinni
4.
september 2009
Það gengur á ýmsu hjá okkur í hrossaræktinni
þessa dagana. Góðu fréttirnar eru þær að
Sigurgyða (7,85) og
Skrýtla (8,10)
eru báðar fengnar við Kappa. Það þýðir að allar hryssurnar sem við höfum
haldið í sumar eru fengnar. Slæmu fréttirnar eru þær að hann Hákon sem
var undan Sigurgyðu og Adam frá Ásmundarstöðum fannst dauður um daginn.
Hann var sérstaklega flott folald og höfðum við oft á orði að hann ætti
eftir að vinna folaldasýninguna í vetur. Við látum hér fylgja með eina
mynd af honum.
Birna og Miskunn fengnar
21. ágúst 2009
Enn bætist í hóp þeirra hryssa sem eru
fengnar þetta sumarið. Birna
sem hefur gefið okkur eintóma en allt of fáa gæðinga er fengin við
Markúsi. Við erum í skýjunum með það og vonum að þar sé önnur
Díva á leiðinni.
Miskunn er fengin við Dáta okkar sem er einmitt undan Birnu og Hágangi.
Hún gengur því með sitt tólfta afkvæmi en meðal afkvæma hennar eru Sigur
og Sigurgyða
frá Húsavík. Einn foli,
Sigurvin, undan henni og Glym frá Innri-Skeljabrekku er
graður og stillti sér einstaklega vel upp fyrir myndatöku um daginn.
Látum hér fylgja með eina af gæjanum.
Tvær nýjar hryssur á söluskrá
18. ágúst 2009
Vorum að bæta inn tveim nýjum hryssum á
söluskránna hjá okkur. Önnur er tveggja vetra Hágangsdóttir sem er mjög
fínleg og falleg með frábæran lit. Hin er Glóð frá Kommu sem er undan
Huga frá Hafsteinsstöðum og er fylfull við Kappa frá Kommu. Nánari
upplýsingar eru um þær á sölusíðunum hér til hliðar.
Heyskap lokið
11. ágúst 2009
Við erum búin að vera í smá pásu frá
hefðbundnu hestastússi undanfarna daga vegna heyskapar og hátíðarhalda.
Berglind og Bjartur voru á Gunnarsstöðum hjá til foreldrum Berglindar
megnið af síðustu viku við undirbúning á fimmtugsafmæli pabba hennar. Um
helgina voru svo mikil hátíðarhöld með brúðkaupi, afmælisveislu og
hlöðuballi. Vignir var upptekinn í heyskap og uppskar 150 rúllur af
grófu og þurru heyi sem ætti að duga okkur vel næsta vetur. Við látum
hér fljóta með nokkrar myndir frá undanförnum dögum til gamans.
Vonarneistarnir
31. júlí 2009
Fátt er skemmtilegra þessa dagana en að
fylgjast með folöldunum. Folaldshryssurnar eru saman í hólfi og eru þær
orðnar sex talsins. Við tókum myndavélina með okkur um daginn og
smelltum af nokkrum myndum. Á fyrstu myndinni eru
Ópera og hryssa undan
henni og Þóroddi, á annarri er foli undan
Kæti og
Sigursteini og á
þriðju myndinni er foli undan
Gjóstu og
Kappa sem Raggi pabbi Berglindar
á.
Búið að staðfesta fyl í 80% af fyrra gangmáli
28. júlí 2009
Í morgun voru allar hryssurnar sem voru hjá
Kappa á fyrra gangmáli skoðaðar. Staðfest var fyl í 80% þeirra sem er
mjög gott enda bara nokkrir dagar síðan hann var tekinn úr hólfinu. Það
eru því nokkrar hryssur sem þarf að skoða aftur. Við erum því bjartsýn á
að endanleg fyljun verði um 90%.
Folaldsmerarnar tínast heim
27. júlí 2009
Folaldsmerarnar eru nú að tínast
heim frá stóðhestum. Í gær fórum við inní Eyjafjörð og sóttum
Kæti
sem var hjá Hóf frá Varmalæk. Vignir sónarkoðaði hana og var hún með
stærðar fyli. Kæti er m.a. móðir Úða og
Skrýtlu frá Húsavík. Undir
henni núna er brúnn foli undan
Sigursteini okkar og er hann rosalega
flottur. Stór bolléttur, hálsgrannur og hágengur. Hefði hún reynst
geld átti hún að fara undir Aris frá Akureyri sem er systursonur
hennar. Einnig tókum við Óperu heim en hún er eins áður hefur komið
fram fengin við Fróða frá Staðartungu. Undir henni er rauðstjörnótt
hryssa undan Þóroddi og lítur hún mjög vel, er fríð fínleg og með
fallegt skref.
Við
komum líka við á Uppsölum og kíktum á
Dáta sem er þar með nokkrum
hryssum. Þar sónarskoðaði Vignir eina hryssu sem líkleg var til þess
að vera fengin enda reyndist svo vera. Það er því fyrsta hryssan sem
er staðfest fengin við honum.
Kappi kominn norður
27. júlí 2009
Kappi er nú kominn norður og var sleppt í
hólf hjá hryssum um helgina. Hann lítur mjög vel út þó hann sé grannur
eins yfirleitt. Þegar hann kom í Hof var hans fyrsta verk að sinna
gæðingshryssunni Sefju frá Úlfljótsvatni. Auk Sefju eru fleiri góðar
hryssur á leið undir hann, m.a. Hrönn frá Búlandi, Skrýtla frá Húsavík,
Óskadís frá Tjarnarlandi, Ugla frá Kommu, Aría frá Grafarkoti, Spes frá
Hólum og Tíbrá frá Hvanneyri.
Sónarskoðun hjá Kappa
24. júlí 2009
Sónarskoðað verður hjá Kappa þriðjudaginn
28. júlí að Velli. Þeir sem eiga hryssur hjá honum eru beðnir um að
sækja þær milli 13 og 18 þann dag. Þær sem ekki verður staðfest fyl í
þarf að skoða aftur eftir u.þ.b. 2 vikur til að staðfesta endanlega
niðurstöðu. Þetta þurfa eigendur hryssnanna að sjá um sjálfir. Mjög góð
frjósemi hefur verið hjá Kappa hingað til svo við leyfum okkur að vera
bjartsýn á góða útkomu.
Ópera og Dúsa fengnar
24. júlí 2009
Búið er að staðfesta fyl í
Óperu sem er flott
klárhryssa undan Ósk frá Brún og Nagla frá Þúfu. Hún er fengin við Fróða
frá Staðartungu. Einnig er Dúsa
sem er mjög góð fyrstu verðlauna hryssa undan Birnu okkar og Ypsilon frá
Holtsmúla fengin. Hún er fylfull við gæðingnum Auði frá Lundum.
Birna farin undir Markús
20. júlí 2009
Birna fór í gærkvöldi undir Markús
frá Langholtsparti. Ekkert gekk að halda henni um daginn undir
Kiljan frá Árgerði. Í gær notuðum við svo Sigurstein okkar til
athuga hvort hún væri í látum. Svo reyndist vera og gripum við þá
tækifærið og skutluðum henni inní Brúnir í Eyjafirði þar sem Markús
er staddur og bíður þess að verða sleppt í hólf um næstu helgi.
Birna er alveg ótrúlega erfið í þessum málum og hefur hún aldrei
fengið í hólfið hjá hesti. Hún er svo mikið skass að það þarf alltaf
að halda henni, annars þora hestarnir hestarnir ekki að koma nálægt
henni.
Undan
Birnu hafa komið tvær hryssur með mjög góð fyrstu verðlaun. Dúsa er
fyrsta afkvæmi Birnu með 8,40 í aðaleinkunn. Díva var annað afkvæmi
hennar og fékk 8,52 fyrir hæfileika fimm vetra gömul. Hún drapst
snögglega í vetur, sex vetra gömul og fylfull af sínu fyrsta folaldi
undan Kappa frá Kommu. Díva var einmitt undan Markúsi svo við vonum
að afkvæmið, ef eitthvað verður, verði sem líkast henni. Myndin sem
fylgir með er af Dívu.
Kappi væntanlegur norður
20. júlí 2009
Nú fer að styttast í að Kappi komi norður í
Hof á seinna gangmál. Tekið verður á móti hryssum milli 16 og 18 nú á
fimmtudaginn. Kappa verður svo sleppt í hólfið á laugardeginum. Mjög vel
hefur gengið hjá honum á fyrra gangmáli fyrir sunnan. Hann er enn í
góðum holdum og bíðum við spennt eftir að sjá hvernig sónarskoðun kemur
út. Væntanlega verður skoðað frá honum kring um næstu helgi. Aðrar
fréttir af Kappa eru þær að rautt folald er komið undan honum svo hann
er ekki arfhreinn brúnn eins og okkur var farið að gruna. Við látum hér
fylgja með mynd sem við vorum að eignast af Kappanum.
37 hryssur fengnar við Kappa á hústímabili
12. júlí 2009
Við erum þessa dagana að taka saman útkomuna
úr hústímabilinu hjá Kappa. Hann var í sæðingum á Dýrfinnustöðum og var
fanghlutfallið um 75% en inní því eru hryssur sem lítil sem engin von
var til þess að fengju. Meðal þeirra sem eru fengnar eru Lydía og Rós
frá Vatnsleysu, Ballerína og Ásjóna frá Grafarkoti, Hugarfluga og
Hending frá Flugumýri, Efling frá Vestri-Leirárgörðum, Venus frá Múla,
Almar-Rún frá Skarði, Glóð frá Grund, Svala frá Garðsá, Vilma frá
Akureyri, Lilla frá Möðruvöllum, Ösp frá Minni-Reykjum, Fantasía frá
Breiðstöðum auk þess sem fósturvísir var fluttur úr Nönnu frá
Halldórsstöðum. Allt eru þetta mjög góðar fyrstu verðlauna merar og
spennandi verður að sjá hvað afkvæmin gera í framtíðinni.
Sitt lítið af hverju
8. júlí 2009
Fyrsta hryssan sem er sónuð fylfull hjá
okkur er hún Gjósta
sem er fengin við Sigurvin
okkar. Þetta er jafnframt fyrsta hryssan sem fær við honum svo við erum
lukkuleg með það. Vonum svo bara að við fáum jarp- eða móvindótta hryssu
:) Birna er farin
undir Kiljan frá Árgerði sem er mjög flottur hestur undan Nagla frá Þúfu
og Bliku frá Árgerði. Við krossleggjum því alla fingur og vonum að hún
að fái við honum og gefi enn einn gæðinginn. Við erum þessa dagana að
vinna aðeins í heimasíðunni okkar og nú er Kappi kominn með undirsíðu
sem virkar eins og sjálfstæð síða
hér. Á næstu dögum mun svo 2009
árgangurinn bætast í listann yfir unghross og fleiri myndir bætast á
síðurnar hjá hrossunum. Hér fylgir með mynd af folanum undan
Skrýtlu og Kappa
sem var síðasta folaldið sem fæddist í ár. Sá stutti er bara nokkuð
sperrtur og nær mikilli ferð á tölti með góðum fótaburði. Enn eitt árið
voru kynjahlutföllin ekki alveg eins og við hefðum kosið, 5 hestar og 2
hryssur.
Sigurvin, Dáti og Sigursteinn komnir í hólf
7. júlí 2009
Fyrir helgi skruppum við með Dáta
(undan Birnu og Hágangi) inní Eyjafjörð þar sem hann er með nokkrum
merum í hólfi á Uppsölum. Miskunn okkar fór með honum auk tveggja
annarra hryssa héðan frá Húsavík. Sigurvin (undan Miskunn og Glym
frá Innri-Skeljabrekku) er með tveim hryssum hér við Húsavík sem og
Sigursteinn (undan Miskunn og Hrym). Hafi menn áhuga er hægt að bæta
við hryssum í hólf hjá þessum folum og kostar það 30.000 með öllu á
fengna meri. Við látum fylgja með myndir af folunum. Á fyrstu tveim
myndunum er Dáti svo Sigursteinn og loks Sigurvin.
Fjórðungsmót og síðasta folaldið fætt
7. júlí 2009
Við lögðum land undir fót um helgina
og skruppum á Fjórðungsmót. Mikið var af góðum en Kiljan frá
Steinnesi stóð sennilega uppi sem eftirminnilegasti hesturinn.
Systkini Kappa stóðu sig líka mjög vel, Kaspar frá Kommu var annar í
B-flokki og Karítas frá Kommu var efst í ungmennaflokki. Á
föstudaginn kastaði svo síðasta merin hjá okkur. Það var hún Skrýtla
sem er mjög góð fyrstuverðlauna hryssa undan Kæti og Markúsi. Hún
kom með brúnt hestfolald undan Kappa. Góðar líkur virðast vera á að
Kappi sé arfhreinn brúnn því við vitum ekki til þess að neitt rautt
folald sé til undan honum. Við látum fylgja hér með þrjár myndir frá
mótinu.
Flottir bræður
2. júlí 2009
Dúsa hefur nú gefið okkur þrjú hestfolöld.
Sjálf er hún mjög flott hryssa með 8,40 í kynbótadómi, undan Birnu okkar
Baldursdóttur og Ypsilon frá Holtsmúla. Fyrsta afkvæmi hennar er
Bogi undan Baugi frá
Víðinesi (mynd vinstra megin) og annað er
Búi undan Hróðri frá Refstöðum (mynd
hægra megin). Það þriðja er svo brúnn foli undan Kappa frá Kommu sem
fæddist í vor. Dúsa er nú hjá Auði frá Lundum og verður mjög spennandi
að sjá hvað kemur útúr því.
Sigurgyða köstuð
1. júlí 2009
Hryssurnar ryðja úr sér folöldunum þessa
dagana og í nótt kastaði Sigurgyða sínu fyrsta folaldi. Það er rosalega
flottur jarpur foli undan Adam frá Ásmundarstöðum og er sennilega
flottasta folaldið sem við höfum fengið í vor. Þessi tími er afskaplega
skemmtilegur og folöldin hvert öðru flottara. Svo eftir nokkrar vikur
verða þau orðin feit og pattaraleg og verða kubbslegri, svo ekki sé
minnst á veturinn þegar þau líta flest út fyrir að vera stuttfætt og
hálsþykk. Eftir árið er svo allt komið í hring og þau orðin álitlegri
aftur, þó ekki endilega þau sem voru álitlegust í fyrstu. Svo endurtekur
sagan sig og maður telur sig sjá eitthvað í þeim svona nýfæddum, bara
gaman að þessu :) Við látum hér fylgja með mynd af Siggu og frumburðinum
hennar.
Miskunn og Birna kastaðar 30. júní 2009
Þá erum við komin heim úr fríinu í
Frakklandi sem var alveg frábært og við tekur nóg stúss í kringum
hrossin. Miskunn
og Birna
virðast hafa fundið á sér að við værum ekki á svæðinu því Miskunn
kastaði daginn sem við komum og Birna um nóttina. Það þarf alltaf að
losa hildarnar hjá Miskunn svo það var mjög heppilegt að hún skildi
bíða þangað til Vignir kæmi heim. Undan
Miskunn og Hóf frá Varmalæk kom
brún hryssa en það er 11. afkvæmi hennar. Undan
Birnu og
Sigursteini frá Húsavík kom
mjög stór brúnn hestur sem verður grár. Töluverð spenna og stress
eru nú alltaf þegar kemur að köstun hjá Birnu því einstakt ólán
hefur elt afkvæmi hennar. Þetta gekk þó allt vel og vonum við að
þetta afkvæmi fái að lifa lengur en til 5-6 vetra. Dagarnir frá því
við komum heim hafa svo farið í að færa hrossin til og frá, setja
óköstuðu hryssurnar á fæðingadeildina og annað í þeim dúr.
Búið er að
skoða meirihlutann af hryssunum sem sæddar voru hjá Kappa og virðist
útkoman vera fín eða um 80% fyljunarhlutfall. Endanleg niðurstaða á
svo eftir að liggja fyrir um næstu helgi en þá verða liðnar tvær
vikur frá því að síðustu hryssurnar voru sæddar. Við látum fylgja
með eina mynd af okkur skötuhjúunum í Eiffel-turninum og aðra af
folanum undan Birnu og Sigursteini.
Fréttir frá Frakklandi
23. júní 2009
Við erum nú stödd í Lyon í
Frakklandi. Vigni er á námskeiði allan daginn en Berglind nýtur
frísins, skoðar borgina og verslar. Fyrsta kvöldið hér fór hópurinn
sem er á námskeiðinu saman út að borða á frægan veitingastað í
borginni. Okkur var því nokkuð skemmt þegar þjónarnir báru fram
matinn sem var feit bjúgu með kartöflum og uppstúf :).
Af hrossunum er einnig allt gott að frétta. Óli, pabbi Vignis,
stendur vaktina og fer nokkrar ferðir á dag til að gá að óköstuðu
hryssunum ef við þekkjum hann rétt. Við tókum nokkrar myndir áður en
við fórum að heiman og látum hér fylgja með mynd af hryssunni undan
Óperu og Þóroddi.